Tekjur
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Íbúar Fjarðabyggðar langtekjuhæstir Íbúar Fjarðabyggðar voru með 5,1 milljón króna á mann í atvinnutekjur árið 2021. Þeir tróna á toppi lista Byggðastofnunar yfir atvinnutekjur eftir sveitarfélögum. Innlent 24.12.2022 09:32
Félag lýtalæknisins Ágústs Birgissonar hagnaðist mest Félag lýtalæknisins Ágústs Birgissonar hagnaðist um rúmlega fimmtíu milljónir króna á síðasta ári og skipar efsta sætið á lista yfir hagnað samlags- og sameignarfélaga á sviði lækninga. Viðskipti innlent 1.12.2022 08:45
Jólabónus á þriðja farrrými Farþegaskipið glæsta Titanic sökk eins og frægt er fyrir 110 árum. Slysið var afar mannskætt. Aðeins 705 manns björguðust af 2224. Langflestir þeirra farþega sem björguðust voru á fyrsta farrými en flestir farþeganna sem létust voru á þriðja farrými. Þaðan var löng leið og torsótt upp á þilfar og björgunarbátar allt of fáir þegar loks kom að þeim. Skoðun 10.11.2022 16:01
Hinir raunverulegu styrkþegar ríkissjóðs Það má líta á það sem styrk til hinna tekjuhæstu að skattleggja fjármagnstekjur minna en launatekjur. Stjórnvöld ákveða að meginþorri fólks skulu skattlagður með tilteknum hætti en síðan að lítill hluti landsmanna skuli skattlagður minna. Skoðun 26.8.2022 07:30
Segir góðar og gildar ástæður fyrir háum launum stjórnenda Davíð Harðarson, stjórnarformaður Haga, segir það skyldu stjórnarinnar að tryggja hæfa stjórnendur og það geri þeir með því að bjóða samkeppnishæf laun. Innlent 24.8.2022 10:44
Skattkerfið hygli þeim tekjuháu Miklar umræður hafa spunnist um fjármagnstekjuskatt undanfarið, í kjölfar útgáfu helstu tekjublaða og því haldið fram að vegna lágs fjármagnstekjuskatts borgi hin tekjumiklu hlutfallslega minna í skatt, samaborið við meðalmanninn. Helstu útgerðarmenn landsins eru í tekjublaði ársins sagðir með mun lægri laun en raun ber vitni. Í helstu tekjublöðum virðast tekjur þjóðþekktra einstaklinga og listamanna einnig mun lægri þar sem sneitt er hjá svokölluðum samlagsfélögum sem þeir stofna utan um starfsemi sína. Innlent 23.8.2022 11:54
Þau ábyrgu og við hin „Óveðursskýin hrannast upp á vinnumarkaði þessa dagana. Þó svo kjaraviðræður séu ekki hafnar eru strax komnar fram hótanir um verkfallsátök og kröfur um viðamiklar aðgerðir ríkisstjórnar til að forða átökum.“ Svo mælir fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Þorsteinn Víglundsson, í grein sem hann nefnir „Vinnumarkaður í úlfakreppu” og bætir síðan við: „Þegar fíflunum fjölgar um of í kringum okkur er stundum gott að líta í spegil. “ Skoðun 23.8.2022 11:01
Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir útskýringum á launum stjórnenda á matvörumarkaði Framkvæmdastjórar lágvöruverslanna hér á landi eru með allt að fjórtánföld lágmarkslaun. Framkvæmdastjóri Costco á Íslandi var með tuttugu og fjórar milljónir á mánuði á síðasta ári. Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir útskýringum frá stjórnum fyrirtækjanna. Innlent 18.8.2022 19:30
Haraldur vildi verða skattakóngurinn Haraldur Ingi Þorleifsson, sem var næstlaunahæsti Íslendingurinn á síðasta ári, segist hafa vonast til þess að verða skattakóngur Íslands fyrir síðasta ár. Viðskipti innlent 18.8.2022 17:50
Birtir launaseðil og segir endurskoðandann hafa gleymt að skila framtalinu Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og umsjónarmaður Karlmennskunnar, þvertekur fyrir að vera launahæsti áhrifavaldurinn eins og fram kemur í Tekjublaði Frjálsrar verslunar og greint hefur verið frá í fjölmiðlum í dag. Lífið 18.8.2022 15:44
Starfsmenn hins opinbera fá milljónir í vasann Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er sá starfsmaður fyrirtækja í eigu íslenska ríkisins eða borgarinnar sem var með hæstu tekjurnar árið 2021 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Hörður var með tæpar fjórar milljónir í mánaðarlaun. Innlent 18.8.2022 14:51
Tuttugu sveitarstjórnarmenn með yfir tvær milljónir á mánuði Borgarstjóri, bæjarstjórar og forsetar bæjarstjórna höfðu það gott árið 2021. Tuttugu sveitarstjórnarmenn voru með yfir tvær milljónir í launatekjur á mánuði í fyrra. Viðskipti innlent 18.8.2022 14:01
Erfitt tekjuár fyrir listamenn í Covid Árið 2021 var mikið Covid ár og lítið um stórar samkomur, svo sem tónleika eða útihátíðir. Hafði þetta veruleg áhrif á tekjur margra listamanna. Tekjuhæsti listamaðurinn sem launþegi samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar var Steinþór Birgisson, kvikmyndaklippari, en hann var með 2.051.000 krónur á mánuði. Lífið 18.8.2022 13:33
Lilja skákar Katrínu og Bjarna Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptamálaráðherra, var með hærri laun en bæði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, á síðasta ári. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var með 3.454.000 krónur á mánuði og trónir toppinn á lista Tekjublaðsins í flokknum „Forseti, alþingismenn og ráðherrar“. Innlent 18.8.2022 13:11
Gríðarlegur launamunur milli forystufólks hagsmunasamtaka Framkvæmdastjórar og talsmenn þriggja stærstu samtaka atvinnulífsins hafa tvisvar til fjórum sinnum hærri tekjur en fólk í sömu stöðum í stéttar-og verkalýðsfélögum. Innlent 18.8.2022 12:30
Skattakóngur fagnar gagnsæi og greiðir glaður skattinn Magnús Steinarr Norðdahl, fyrrverandi forstjóri LS Retail, var launahæsti Íslendingurinn árið 2021 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Hann vonast til þess að skattgreiðslur hans nýtist öðrum og segir tilfinninguna vera góða. Viðskipti innlent 18.8.2022 10:58
Magnús skákar Árna Oddi Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, var aldrei þessu vant ekki launahæsti forstjóri landsins. Hann var næstlaunahæstur með tæplega 43 milljónir króna á mánuði árið 2021. Viðskipti innlent 18.8.2022 10:18
Þorsteinn og Birgitta Líf tekjuhæst áhrifavalda Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og umsjónarmaður hlaðvarpsins Karlmennskunnar, var tekjuhæstur áhrifavalda árið 2021 samkvæmt nýju tölublaði Frjálsrar verslunar. Þorsteinn var með 1.369.000 krónur á mánuði en næst á eftir honum kom Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class, eigandi Bankastræti Club og umboðsmaður, með 1.275.000 krónur á mánuði. Lífið 18.8.2022 10:13
Hafþór, Anníe og Eiður með hæstu tekjurnar Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson og CrossFit-stjarnan Anníe Mist Þórisdóttir eru það íþróttafólk sem hafði langhæstar tekjur á Íslandi á síðasta ári, samkvæmt Tekjublaði Frjálsar verslunar sem kom út í dag. Sport 18.8.2022 10:00
Magnús er skattakóngur ársins 2021: Með tæplega 118 milljónir á mánuði Magnús Steinarr Norðdahl, fyrrverandi forstjóri LS Retail var launahæsti Íslendingurinn árið 2021 með tæplega 118 milljónir króna í launatekjur á mánuði. Viðskipti innlent 18.8.2022 09:31
Hagnaðurinn aldrei meiri og stjórnin vill greiða 15 milljarða í arð Hagnaður Landsvirkjunar jókst töluvert á milli ára og nam 29,5 milljörðum króna, sem er tæplega 64 prósent aukning frá árinu 2020. Stjórn fyrirtækisins hyggst leggja til að greiddur verði 15 milljarða króna arður aftur í ríkissjóð. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar fyrir árið 2021 sem kom út í dag. Viðskipti innlent 18.2.2022 15:31
Gylfi enn langlaunahæstur en tveir táningar með hundrað milljónir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru tveir launahæstu atvinnumenn Íslands í íþróttum. Fjórtán íslenskir atvinnumenn eru sagðir með yfir 100 milljónir króna hver í árslaun. Sport 3.1.2022 11:21
Leiðréttur launamunur kynjanna 4,1 prósent Launamunur kynjanna hefur dregist saman frá árinu 2010 en kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar. Á sama tíma hafa áhrif menntunarstigs og lýðfræðilegra þátta á launamun minnkað. Viðskipti innlent 8.9.2021 15:23
Tekjur Íslendinga: Skattadrottning seinasta árs er stærðfræðikennari Inga Dóra Sigurðardóttir, stærðfræðikennari við Verzlunarskólann, var skattadrottning Íslands í fyrra. Inga hagnaðist, ásamt eiginmanni sínum Berki Arnviðarssyni, um tæpa tvo milljarða króna á sölu á hlutabréfum í danska fyrirtækinu ChemoMetec. Viðskipti innlent 20.8.2021 16:16
Tekjur Íslendinga: Vigdís sú eina á topp tíu með körlunum Óskar Sesar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ber höfuð og herðar yfir aðra embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja hvað varðar tekjur. Samkvæmt nýútkomnu Tekjublaði Frjálsrar Verslunar var Óskar Sesar með rúmlega sex milljónir króna í mánaðartekjur í fyrra. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands er eina konan á topp tíu listanum. Viðskipti innlent 19.8.2021 13:24
Tekjur Íslendinga: Lítil hreyfing á lista fjölmiðlafólks þar sem RÚVarar mega vel við una Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, var tekjuhæsti fjölmiðlamaður landsins á síðasta ári samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar með 5,47 milljónir króna á mánuði að jafnaði. Hluti þeirra tekna eru eftirlaun frá tíma hans sem ráðherra, þingmaður og seðlabankastjóri. Viðskipti innlent 19.8.2021 07:00
Tekjur Íslendinga: Onlyfans-stjarna er tekjuhæsti áhrifavaldurinn Samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar Verslunar sem kom út í dag þénaði Klara Sif Magnúsdóttir rúmlega eina milljón króna á mánuði árið 2020. Helsta tekjulind Klöru Sifjar er vefsíðan Onlyfans, en hún selur áskrifendum sínum aðgang að erótísku efni í gegnum síðuna. Lífið 18.8.2021 12:01
Tekjur Íslendinga: Tekjur forstjóra allt að 36 milljónir króna á mánuði Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels og Árni Harðarson, forstjóri Salt Investments raða sér í efstu sæti á lista Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu forstjóra fyrirtækja í fyrra. Sá fyrrnefndi var að jafnaði með 35,94 milljónir króna í útsvarsskyldar tekjur á mánuði og nafni hans með góða 26,31 milljón í mánaðartekjur. Viðskipti innlent 18.8.2021 11:55
Tekjur Íslendinga: Tekjuhæsti listamaður landsins er klippari Elísabet Ólafía Ronaldsdóttir klippari var með rúmlega sex milljónir króna í mánaðartekjur árið 2020 samkvæmt tekjublaði Frjálsar Verslunar sem kom út í dag. Lífið 18.8.2021 11:30
Tekjur Íslendinga: Guðni Th. tekjuhæsti stjórnmálamaðurinn Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er tekjuhæsti stjórnmálamaður landsins í tekjublaði Frjálsrar verslunar með 2,80 milljónir króna í mánaðarlaun. Innlent 18.8.2021 11:02