Frjálsar íþróttir

Fréttamynd

Kolbeinn Höður næstsíðastur

Kolbeinn Höður Gunnarsson frá UFA endaði í 20. og næstsíðasta sæti af þeim sem luku löglega keppni í 400 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem hófst í dag í Gautaborg í Svíþjóð.

Sport
Fréttamynd

Eins og fiðrildi upp Esjuna

Fjölskylda Anítu Hinriksdóttir vill passa upp á það að hún fái að þroskast eins og eðlilegur unglingur en þessi 17 ára stelpa keppir á sínu fyrsta stórmóti fullorðinna á Evrópumeistaramótinu í Gautaborg í dag. Frænka hennar, Martha Ernstsdóttir, var í söm

Sport
Fréttamynd

Bolt í áfalli vegna Pistorius

Usain Bolt átti í fyrstu erfitt með að trúa því að Oscar Pistorius hafi verið ákærður fyrir að myrða kærustu sína af yfirlögðu ráði.

Sport
Fréttamynd

Vita núna hver ég er

Einar Daði Lárusson, besti tugþrautarmaður Norðurlanda árið 2012, hefur aldrei æft eins vel og fyrir áramót. "Ég gæti orðið miklu betri,“ segir Einar Daði.

Sport
Fréttamynd

Aníta náði Íslandsmeti fjórðu helgina í röð

Aníta Hinriksdóttir náði þeim magnaða árangri um helgina að setja Íslandsmet fjórðu helgina í röð. Hinar þrjár helgarinnar setti hún metin í einstaklingsgreinum en að þessu sinni hjálpaði hún kvennasveit ÍR að setja Íslandsmet í boðhlaupi.

Sport
Fréttamynd

Fimm eiga góðan möguleika á því að tryggja sig inn á EM

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram í Laugardalshöllinni um helgina en tæplega 150 keppendur úr þrettán félögum eru skráðir til leiks. Mótið er eitt af hápunktum innanhússtímabilsins ásamt bikarkeppninni og Evrópumeistaramótinu innanhúss sem fram fer í Gautaborg fyrstu helgina í mars.

Sport
Fréttamynd

Hafdís vann tvö gull á móti í Stokkhólmi

Hafdís Sigurðardóttir er í frábæru formi og hún sýndi það og sannaði með því að vinna tvö gull á frjálsíþróttamótinu Raka Spåret i Stokkhólmi. Hafdís bætti sinn besta tíma á árinu í báðum greinum, 400 metra hlaupi og langstökki. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands.

Sport
Fréttamynd

Aníta: Stefni á bætingu í Gautaborg

Anítu Hinriksdóttur virðast fá takmörk sett þessa dagana en um helgina setti hún nýtt Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss þegar hún hljóp á 2:03,27 mínútum á Meistaramóti Íslands fyrir 15-22 ára um helgina.

Sport
Fréttamynd

Aníta stórbætti eigið met

Aníta Hinriksdóttir heldur áfram að bæta Íslandsmet í hlaupum. Í dag stórbætti hún eigið met í 800 m hlaupi kvenna innanhúss.

Sport
Fréttamynd

Met um hverja helgi

Aníta Hinriksdóttir bætti 32 ára Íslandsmet í 1.500 metra hlaupi í gær aðeins átta dögum eftir að hún setti met í 800 metra hlaupi og tryggði sig inn á EM.

Sport
Fréttamynd

Aníta ekki með eina Íslandsmetið í dag - Kolbeinn setti líka met

Kolbeinn H. Gunnarsson úr UFA setti nýtt Íslandsmet í 400 metra hlaupi karla á Stórmóti ÍR í frjálsum íþróttum í Laugardalshöllinni í dag en áður hefur verið greint frá því að ÍR-ingurinn Aníta Hinriksdóttir sló 32 ára met Ragnheiðar Ólafsdóttur úr FH í 1500 metra hlaupi um tæpar tvær sekúndur. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍR-inga.

Sport
Fréttamynd

Aníta með nýtt Íslandsmet í 1500 metra hlaupi

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakonan efnilega úr ÍR, setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 1500 metra hlaupi innanhúss á Stórmóti ÍR í dag þegar hún kom langfyrst í mark á 4 mínútum 19 sekúndum og 57 sekúndubrotum.

Sport
Fréttamynd

Hafdís í góðum gír á Stórmóti ÍR

Hafdís Sigurðardóttir úr UFA náði flottum árangri á fyrri degi Stórmóts ÍR í frjálsum íþróttum í dag en mótið er hluti af Reykjavíkurleikunum. ÍR-ingurinn Hilmar Arnar Jónsson setti piltamet í kúluvarpi og náði lágmarki fyrir HM unglinga í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍR-inga.

Sport
Fréttamynd

Stórmót ÍR í frjálsum fer fram í 17. sinn um helgina

ÍR-ingar halda Stórmót ÍR í frjálsum íþróttum í sautjánda sinn um helgina en mótið fer fram sem endranær í Laugardalshöllinni og hefur fest sig í sessi sem langstærsta opna innanhússmótið í frjálsum íþróttum hér á landi. Keppt er í aldursflokkum frá átta ára og yngri og upp í karla og kvennaflokk og koma keppendur víðsvegar að af landinu auk um 70 Færeyinga og eins Norðmanns sem hefur skráð sig til keppni. Þetta kemur fram í frétttilkynningu frá ÍR-ingum.

Sport
Fréttamynd

Kári Steinn og Rannveig eru hlauparar ársins 2012

Framfarir – hollvinafélag millivegalengda og langhlaupara, völdu um helgina frammúrskarandi hlaupara og hlaupahópa ársins 2012 en þetta er tíunda árið í röð sem samtökin afhenda þessi verðlaun. Viðurkenningarnar voru veittar á Reykjavík International Games í Laugardalshöll.

Sport
Fréttamynd

Aníta vann mesta afrekið á Áramóti Fjölnis

Aníta Hinriksdóttir úr ÍR endaði frábært ár með því að ná mesta afrekinu á sjötta Áramót Fjölnis sem var haldið um síðustu helgi. Aníta var þarna að vinna veglegan farandbikar annað árið í röð en hann var veittur í fjórða sinn.

Sport
Fréttamynd

Kári Steinn og Arndís komu fyrst í mark

Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki og Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni komu fyrst í mark í karla- og kvennaflokki í Gamlárshlaupi ÍR sem fram fór venju samkvæmt í gær.

Sport
Fréttamynd

Fiffó gerður að heiðursfélaga FRÍ

Friðrik Þór Óskarsson var fyrr í mánuðinum gerður að heiðursfélaga Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir framlag sitt til íþróttanna hér á landi.

Sport
Fréttamynd

Aníta bætti sig um sex sekúndur

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, bætti eigið Íslandsmet í 600 metra hlaupi innanhúss á Jólamóti ÍR sem fram fór í Laugardalshöll í gær.

Sport
Fréttamynd

Reynir bætti 39 ára gamalt piltamet

Reynir Zoëga Geirsson, 13 ára frjálsíþróttakappi úr Breiðabliki, bætti í gær 39 ára gamalt piltamet í 1500 metra hlaupi innanhúss á móti hjá FH.

Sport
Fréttamynd

Pishchalnikova grunuð um lyfjamisnotkun

Darya Pishchalnikova frá Rússlandi, sem vann silfurverðlaun í kringlukasti kvenna á Ólympíuleikunum í London í sumar, sætir rannsókn vegna mögulegra misnotkun á lyfjum.

Sport
Fréttamynd

Aníta fékk brons í Danmörku

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, varð þriðja á Norðurlandamótinu í víðavangshlaupum sem fór fram í Tårnby í Danmörku í gær.

Sport
Fréttamynd

Helga Margrét lærir nýjan lífsstíl

Fjölþrautarkonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur þurft að setja bæði frjálsíþróttaskóna og körfuboltaskóna inn í skáp á meðan hún reynir að koma skrokknum í lag. Helga Margrét hefur verið að glíma við huldumeiðsli undanfarin þrjú ár og hélt að hún væri búin að finna vandamálið á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Ásdís er frjálsíþróttamaður ársins 2012

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir hefur verið valin frjálsíþróttamaður ársins 2012 en þetta var tilkynnt á lokahófi Frjálsíþróttasambands Íslands á dögunum og kemur fram á heimasíðu Ármenninga í dag.

Sport