Alþingi
284 285 286 287 288 289 290 291 … 291 ›
Ekki nauðsynlegt að þýða öll lög Frá og með áramótum verða íslensk stjórnvöld ekki lengur skuldbundin til að þýða á íslensku öll lög og reglugerðir sem gilda hér á landi. Frumvarp dómsmálaráðherra, sem afnemur þýðingarskylduna, var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:51
Þrjár nýjar stofnanir Í nýjum frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er lagt til að í stað Samkeppnisstofnunar verða til tvær stofnanir, Samkeppniseftirlitið og úrskurðarnefnd samkeppnismála. Að auki verður sett á fót Neytendastofa. Innlent 13.10.2005 18:51
Heimild yfirvalda felld niður Heimild samkeppnisyfirvalda til að bregðast við aðstæðum sem skaða samkeppni er felld niður samkvæmt lagafrumvörpum sem viðskiptaráðherra lagði fram í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Íslenskir dómstólar hlíti EFTA Í frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er ákvæði sem segir að íslenskir dómstólar verði að hlíta niðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA í samkeppnismálum er varða Evrópska efnahagssvæðið. Iðnaðarráðherra segir það ekki brot á ákvæði í stjórnarskrá er varði sjálfstæði dómstólanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi Framsóknar aldrei minna Fylgi Framsóknarflokksins er í sögulegu lágmarki, samkvæmt nýrri könnun þjóðarpúls Gallups sem birt var á RÚV í gær. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 10% og hefur minnkað um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 13.10.2005 18:51
Guðni vill rífa Steingrímsstöð Landbúnaðarráðherra lýsir því yfir að hann vilji fjarlægja Steingrímsstöð í Efra-Sogi. Það væri lítil fórn fyrir Landsvirkjun. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir ekki víst að það yrði urriðanum til bóta að fjarlægja stöðina. Innlent 13.10.2005 18:49
Hver á að eiga orkulindirnar? Grundvallarágreiningur í íslenskum stjórnmálum um hver eigi að eiga orkulindir þjóðarinnar kristallaðist í snörpum umræðum á Alþingi í dag. Formaður Vinstri grænna setti samstarfið innan R-listans í uppnám þegar hann strengdi þess heit að allt yrði gert til að koma í veg fyrir sameiningu orkufyrirtækja ríkisins og einkavæðingu þeirra. Innlent 13.10.2005 18:49
Væri ekki á leið til lýðræðis Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef ekki hefði verið gerð innrás í Írak hefðu ekki verið neinar kosningar þar og þjóðin ekki á leið til lýðræðis. Innlent 13.10.2005 18:47
Vilja algert reykingabann Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Innlent 13.10.2005 18:47
Áfengisgjald lækkað um 30% Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis. Innlent 13.10.2005 18:47
Þorsteinn situr á eigin forsendum Að undanskildum Þorsteini Pálssyni, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, hefur enginn sendiherra gegnt trúnaðarstarfi fyrir stjórnmálaflokka. Innlent 13.10.2005 18:47
Stórt skref stigið á Alþingi Stórt skref var í dag stigið í átt að bættum réttindum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Félagsmálaráðherra kynnti tillögur um að foreldrar gætu fengið greiðslur úr ríkissjóði í allt að níu mánuði til að sinna veikum börnum. Málið vakti almenna ánægju meðal þingmanna allra flokka á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 18:47
Aukin réttindi foreldra Félagsmálaráðherra boðaði rétt fyrir hádegi umfangsmiklar breytingar á réttindum foreldra langveikra barna í fyrirspurnartíma sem nú stendur yfir á Alþingi. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, bar upp fyrirspurnina um þennan rétt foreldra. Innlent 13.10.2005 18:47
Skurðstofunni í Eyjum ekki lokað Heilbrigðisráðherra stefnir að því að skurðstofu sjúkrahússins í Vestmannaeyjum verði ekki lokað í sex vikur í sumar eins og boðað hafði verið vegna fjárskorts sjúkrahússins. Sú ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd og Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslyndra, spurði ráðherra á Alþingi í dag hvort hann ætlaði að beita sér í málinu. Innlent 13.10.2005 18:47
Færa þarf sendiráð BNA Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók undir það með Merði Árnasyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær að staðsetning bandaríska sendiráðsins í Þingholtunum væri ekki heppileg. Innlent 13.10.2005 18:47
Misskipting fer vaxandi Hver íbúi í Reykjavík fær að meðaltali um 10 þúsund krónur í fjárhagsaðstoð á ári og greiðir Reykjavíkurborg um 1,2 milljarða í fjárhagsaðstoð á ári. Það er allt að tífalt hærra á hvern íbúa en í öðrum sveitarfélögum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:47
Ekki bein pólitísk afskipti Menntamálaráðherra ætlar að afnema afnotagjöld og breyta jafnframt fyrirkomulagi Ríkisútvarpsins. Pólitískt skipað útvarpsráð heyrir hugsanlega sögunni til - í það minnsta bein afskipti stjórnmálaflokka af rekstri Ríkisútvarpsins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:47
Afnotagjöld andstæð evrópulögum Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð niður og eru stjórnvöld þannig að bregðast við gagnrýni ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Menntamálaráðherra leggur fram frumvarp á næstunni þar sem hlutverk RÚV verður endurskilgreint. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:46
Tryggja verður frelsi RÚV Svanfríður Jónasdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í útvarpsráði, segir að tryggja verði frelsi Ríkisútvarpsins fari það á fjárlög. Innlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld óviðunandi Í þingsályktunartillögu Frjálslynda flokksins sem nú er til umræðu á Alþingi segir að núverandi fjármögnun Ríkisútvarpsins með afnotagjöldum og auglýsingatekjum sé óviðunandi. Innlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld RÚV felld niður Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð af samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi á næstu vikum. Þingflokksformanni Framsóknarmanna líst best á nefskatt í staðinn. Innlent 13.10.2005 18:46
Engan glannaskap Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna vill fara varlega með málefni Ríkisútvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:46
Hlynntur niðurfellingu Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins er mjög hlynntur því að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:46
Efast um trúverðugleikann Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar var dreginn í efa á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan hélt því fram að forsætisráðherra hefði staðfest í viðtali á Stöð 2 að þrýstingur frá Bandaríkjamönnum hefði leitt til ákvörðunarinnar um stuðning við innrásina í Írak. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:46
Ekki á dagskrá að lýsa Hellisheiði Ekki er áætlað að lýsa veginn um Hellisheiði á næsta áratug. Þetta kom fram á Alþingi í fyrradag í svari Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 18:46
Iceland fái ekki einkaleyfi Formaður Vinstri grænna og starfandi utanríkisráðherra leggjast báðir gegn því að verslunarkeðjan „Iceland“ fái einkaleyfi á orðinu Iceland í löndum Evrópusambandsins. Þeir eru hins vegar ósammála um hvort það gæti verið mönnum til framdráttar að skrá sig fyrir léninu steingrimurjod.is. Innlent 13.10.2005 18:45
Frumvarp til að leyfa enska þuli Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að ráðherrum undanskildum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem gerir það að verkum að hægt verður að sýna frá íþróttaviðburðum án þess að nota íslenska þuli eða þýðingartexta. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins neitar því að flokkurinn sé að rétta Skjá einum hjálparhönd. Innlent 13.10.2005 18:45
Samfylking spurulust allra flokka Alþingismenn spyrja um allt á milli himins og jarðar, stjórnarandstæðingar þó sýnu meira en stjórnarliðar. Kynþroski þorsks og símtöl til Grænlands eru á meðal fyrirspurna sem bornar hafa verið upp á yfirstandandi þingi. Innlent 13.10.2005 15:32
Heilbrigðisstéttir megi auglýsa Lögð hefur verið fram tillaga á Alþingi um að auglýsingar lækna, tannlækna og annarra heilbrigðisstétta, sem og auglýsingar heilbrigðisstofnana, verði heimilaðar. Flutningsmaður tillögunnar er Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar. Innlent 17.10.2005 23:41
Fangelsisreksturinn lagður niður Leggja þarf niður fangelsisrekstur í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á næstu þremur árum, að mati Fangelsismálastofnunar. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingmanna Samfylkingarinnar um breytingar í fangelsismálum. Innlent 13.10.2005 15:30