Eldgos og jarðhræringar
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 132 ›
Samhæfingarstöðin virkjuð, hraunkæling hafin og fundað klukkan 8 Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð í gærkvöldi og gripið til hraunkælingar á ný vegna hraunspýja sem voru farnar að vella yfir varnargarða við Svartsengi. Innlent 21.6.2024 06:14
Enn stöðugt streymi í Svartsengi Eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí hefur nú staðið í rétt rúmar þrjár vikur og áfram gýs úr einum gíg rétt austan Sundhnúks. Landris helst stöðugt í Svartsengi og því ljóst að meiri kvika flæðir inn í kvikuhólfið en gýs upp úr því. Innlent 20.6.2024 13:41
Þrír skjálftar í Mýrdalsjökli í kvöld Skjálfti af stærð 3,3 varð í Mýrdalsjökli klukkan 21:26 í kvöld. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að tveir minni skjálftar, báðir af stærð 2,8, hafi orðið stuttu síðar. Innlent 19.6.2024 22:12
„Sorglegt að þurfa að rífa þetta hús“ Grindvíkingar syrgja nýlegt íþróttahús bæjarins sem þarf að rífa en segja það einnig nauðsynlegt til að tryggja öryggi. Innlent 19.6.2024 21:36
Stýra hvorki né stoppa hraunflæði með vatni Slökkvilið og verktakar hafa staðið í ströngu við að halda hraunflæði í skefjum við Svartsengi síðasta sólarhringinn. Innlent 19.6.2024 21:01
Hætta hraunkælingu og meta stöðuna í dag Slökkviliðsmenn í Grindavík hafa hætt að dæla vatni yfir hraunið sem teygði sig upp yfir varnargarðinn við Svartsengi. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna segir fyrsta hraunkælingaraðgerð frá Heimaeyjargosinu hafa verið tilraun en að þegar hafi verið búið að stöðva framgang hraunsins. Innlent 19.6.2024 09:15
Hraunkælingin ekki gengið snurðulaust fyrir sig Slökkviliðsmenn á vegum Brunavarna Suðurnesja voru í nótt að dæla vatni á hraun við varnargarðinn við Svartsengi. Kælingin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig þar sem upp komu vandræði með vatnsþrýstinginn. Innlent 19.6.2024 07:43
Hraunkælingin gengur vel og heldur áfram í alla nótt Slökkvilið Grindavíkur hóf fyrr í kvöld ásamt úrvalsliði viðbragðsaðila að dæla vatni yfir hraun sem hóf að teygja sig yfir varnargarðinn við Svartsengi. Um er að ræða fyrstu hraunkælingu af þessu tagi síðan í Heimaeyjargosinu. Innlent 18.6.2024 22:50
Slökkvilið undirbýr hraunkælingu við varnargarð við Svartsengi Í dag fór lítil spýja úr eldgosinu við Sundhnúk yfir varnargarð við Sýlingafell. Varnargarðurinn ver orkuverið í Svartsengi. Slökkvilið Grindavíkur vinnur á vettvangi auk ýmissa verktaka á vegum almannavarna á vinnutækjum sem eru reyna að reyna að stöðva flæði yfir varnargarðinn. Ekki hefur sú aðferð verið notuð síðan í Vestmannaeyjagosinu 1973. Innlent 18.6.2024 18:36
Eldgosið stöðugt og gosmengun til norðurs Eldgosið á Reykjanesi er stöðugt og áfram gýs úr einum gýg. Hraun flæðir mestmegnis til norðurs meðfram Sýlingarfelli. Landris heldur áfram í Svartsengi á svipuðum hraða, sem er þó minni en áður en eldgosið hófst. Gasmengun fer til norðvesturs og síðar norðurs í dag og mun mælast á norðanverðu Reykjanesi. Færist í átt til höfuðborgarsvæðisins á morgun. Innlent 18.6.2024 14:10
Rífa íþróttahúsið Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga. Innlent 18.6.2024 09:06
Fáu spáð en vel fylgst með Vangaveltur eru margar um goslok við Grindavík, landris og -sig við Svartsengi og tengsl gosvirkninnar og þriggja eldgosa við Fagradalsfjall. Grunnmæligögn eru traust, um jarðskorpuhreyfingar, rúmmálsbreytingar í geymsluhólfi kviku og efnasamsetningu hennar, bæði úr gosunum við Grindavík og Fagradalsfjall. Gögnin segja forvitnilega sögu. Skoðun 14.6.2024 15:00
Tilkynntu um ekki yfirvofandi eldgos Veðurstofan sendi fjölmiðlum rétt í þessu tilkynningu um eldgos sem gæti hafist innan skamms við Öræfajökul. Þó er allt með kyrrum kjörum við Öræfajökul og ekki búist við eldgosi í alvöru þar sem að þessi tilkynning var æfing. Innlent 14.6.2024 09:00
Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu. Innlent 13.6.2024 20:40
Lokað í Bláa lóninu vegna gasmengunar Lokað verður í Bláa lóninu til hádegis í það minnsta í dag vegna slæmra loftgæða. Í nótt var suðaustanátt og gasmengun úr eldgosinu í Sundhnúkagígum blés til norðvesturs yfir Reykjanesbæ og Bláa lónið. Innlent 13.6.2024 08:31
„Fylgir því þvílík sæla að koma hingað aftur“ Hópur kylfinga var mættur að leika sinn daglega hring á Húsatóftavelli í nágreni Grindavíkur í gær en völlurinn var opnaður á nýjan leik á sunnudaginn síðastliðinn eftir óvissu sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Meðal þeirra var einn af stofnendum Golfklúbbs Grindavíkur sem segir því fylgja þvílík sæla að geta snúið aftur á völlinn. Golf 12.6.2024 10:01
Dregur úr gasmengun með auknum vindi næstu daga Gasmengun minnkar töluvert í dag og næstu daga með auknum vindi. Gosið mallar áfram og meginstraumur hrauns mjakast til norðurs og norðvesturs. Innlent 12.6.2024 08:28
„Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“ Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur. Golf 12.6.2024 08:00
Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi Gosmóða frá eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni í dag. Þorsteinn Jóhannsson, umhverfisfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir vindátt stjórna því hvert gosmóðan fer hverju sinni. Í dag hafi verið hægviðri í fyrsta sinn frá því að gosið hófst og því hafi móðan lagst yfir höfuðborgarsvæðið. Innlent 11.6.2024 21:47
Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi og má því búast við að það gjósi aftur á Reykjanesskaganum. Gosmóða mælist yfir höfuðborginni og víðar á Suðurlandi og Suðvesturlandi og er fólki ráðlagt frá því að hreyfa sig utandyra. Innlent 11.6.2024 13:01
Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu. Innlent 11.6.2024 12:06
Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu. Innlent 11.6.2024 10:41
Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 11.6.2024 07:41
„Þessi kostnaður hverfur ekki“ Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara. Innlent 10.6.2024 23:42
Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar Framkvæmdir við Grindavíkurveg hefjast væntanlega í vikunni en til skoðunar er að færa veginn vestar eftir að hraun rann yfir hann um helgina. Vegurinn fór um helgina undir hraun í þriðja sinn síðan eldvirknin hófst við Sundhnúk. Innlent 10.6.2024 21:45
Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni „Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“ Innlent 10.6.2024 09:48
Áætlanir gera ráð fyrir að hraun fari yfir lagnir Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnjúka er nú í um 700 metra fjarlægð frá lögnum orkuversins HS orku. Framkvæmdastjóri segir að búið sé að gera allt sem hægt er til að tryggja órofna starfsemi orkuverksins og að atburðir gærdagsins hafi ekki haft nein áhrif. Innlent 9.6.2024 12:01
Vonast til að opna Bláa lónið á næstu dögum Bláa lónið verður lokað í dag og á morgun hið minnsta. Að sögn framkvæmdastjóra er vonast til þess að hægt verði að opna aftur í næstu viku. Skilyrði fyrir opnun eru að tvær flóttaleiðir frá staðnum séu færar. Innlent 9.6.2024 10:12
Hrauntungan mallar löturhægt áfram Virki í gígnum sem enn er er virkur í eldgosinu við Sundhnúksgíga er svipuð og undanfarna daga. Hrauntungan sem rann yfir Grindavíkurveg í gærmorgun hreyfist löturhægt eins og er, en viðbragsaðilar eru viðbúnir því að annað áhlaup gæti hafist á ný. Innlent 9.6.2024 07:44
Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga rann með miklum krafti yfir Grindavíkurveg í dag, eftir að hraunflæði jókst skyndilega í nótt. Hraunbreiðan er nú í um áttahundruð metra fjarlægð frá heitavatnslögnum og færist hægt áfram. Innlent 8.6.2024 22:53