Ferðaþjónusta

Flugfargjöld fara sífellt lækkandi
Meðalverð fargjalds í janúar árið 2017 er 20 þúsund krónum lægra en á sama tíma fyrir ári.

Viðskiptafréttir ársins 2016: Fleiri ferðamenn, virkari neytendur, stærri vörumerki og sterkari króna
Innkoma erlendra smásölurisa, ferðamenn, virkir neytendur, Panamaskjöl og tæknigallar einkenndu meðal annars fréttir úr viðskiptalífinu í ár.

Perlan verður að lundabúð: „Mjög dapurlegt að þetta skuli gerast“
"Við héldumst í hendur í gærkvöldi og sungum Heims um ból og kvöddum þannig Perluna.“ segir Perluvinurinn Atli Bollason.

Vegaþjónusta í lágmarki yfir áramót þrátt fyrir aukna umferð
Umferð á vegum á Suðurlandi yfir hátíðirnar hefur tvö- til þrefaldast á tveggja ára tímabili. Aukningu má að mestu leyti rekja til fjölgunar ferðamanna. Þrátt fyrir það verður þjónusta við vegi á þessum tíma í lágmarki.

Ferðamenn séu upplýstir um að of mikið brauðát geti haft alvarlegar afleiðingar
"Ég sem ábyrgðarmaður hrossa minna get ekki horft upp á nokkur hundruð manns gefa merunum mínum brauð á hverjum degi og sílspika þær. Það er ekki hollt til lengdar og þær lifa það ekki af,“ segir Margeir Ingólfsson, bóndi á Brú í Biskupstungum.

Vegir eins og í þriðjaheimsríki
Vegagerðin hefur verulegar áhyggjur af öryggi vegfarenda vegna fjölgunar ferðamanna. Mikill fjöldi ferðamanna er á vegum landsins um hátíðirnar. Illa búnir bílar á vegum landsins valda pirringi í umferðinni.

Köfunarslys í Silfru
Köfunarslys varð í Silfru á Þingvöllum á tólfta tímanum í dag.

Hefur neyðst til að fella hross vegna ágangs ferðamanna
Margeir Ingólfsson, bóndi í Bláskógabyggð, hefur sett upp skilti við jörð sína vegna ferðamanna sem dekra við hestana í hans óþökk.

Gríðarlegt álag á björgunarsveitarmönnum fyrir austan fjall
Björgunarsveitarmenn á Suðurlandi stóðu í ströngu langt fram á nótt vegna slæms veðurs. Formaður björgunarsveitarinnar Víkverja á Vík segir mikið af óþarfa útköllum.

Þriggja bíla árekstur í brekkunni niður að Vík
Mikil hálka er nú á vegum á Suðurlandi.

Björgunarsveitarmenn á Suðurlandi verða að fram á kvöld
Margir þessara ökumanna erlendir ferðamenn sem hafa aldrei séð snjó

Fjölmennt í miðbænum
Kaffihúsin þéttsetin.

Slökkviliðsmenn buðu ferðamönnum húsaskjól
Eldur kom upp í leiguíbúð sex ferðamanna við Kirkjuteig snemma í gærkvöldi.

Fjörutíu bílar fastir á Reynisfjalli
Veginum verið lokað.

Ekki orðið var við marga ferðamenn í kirkjugörðum Reykjavíkur
Kári Aðalsteinsson, garðyrkjustjóri hjá kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæmis, segir að allt hafi gengið mjög vel í görðunum í morgun en venju samkvæmt hefur fólk streymt í kirkjugarðana á aðfangadegi til að vitja leiða látinna ástvina.

Seinkanir hjá WOW air: Vélin frá Berlín á að lenda hálftíma eftir að jólin hringja inn
Ástæðan bilun í breiðþotu í Amsterdam í gær.

Stærsta jólaveisla Hjálpræðishersins hingað til
Gert er ráð fyrir að yfir þrjú hundruð manns komi á árlegan jólafögnuð Hjálpræðishersins í Ráðhúsi Reykjavíkur sídegis í dag, en það verður stærsta jólaveisla sem Hjálpræðisherinn hefur haldið hingað til. Skipuleggjandi segir metfjölda barna væntanlegan.

Nafn mannsins sem lést í bílslysi á Holtavörðuheiði
Slysið varð þann 22. desember.

Bein útsending: Fréttir Stöðvar 2 á aðfangadag
Hefjast á slaginu klukkan 12.

Hætti sem blaðamaður á Mbl.is eftir að frétt var tekin úr birtingu
Fréttin sneri að því að Ísland væri orðið óæskilegur áfangastaður fyrir ferðamenn.

Fjórar rútur fóru út af á Suðurlandsvegi
Rúta fór út af á Suðurlandsvegi, skammt frá Vík, rétt fyrir klukkan 11 í morgun.

Tekjur ríkissjóðs auknar um 7 milljarða og afgangur minnkaður
Nokkuð breið sátt ríkir um afgreiðslu útgjalda og tekjufrumvarpa ríkissjóðs vegna fjárlaga næsta árs.

Banaslys á Holtavörðuheiði
Banaslys varð á Holtavörðuheiði klukkan 14:30 í dag þegar tveggja bíla árekstur varð á heiðinni.

Vonar að ferðamönnum verði ekki smalað í kirkjugarðana um jólin
Kári Garðarsson, garðyrkjustjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis, segir að nóg umferð og álag sé við kirkjugarðana um hátíðarnar þó svo að ferðamenn bætist ekki við líka.

Benda ferðamönnum í Reykjavík á að fara í messu og að kíkja í kirkjugarðana um jólin
Þegar flestir Íslendingar verða uppteknir í jólaboðum með fjölskyldum og vinum um hátíðarnar þá munu tug þúsundir ferðamanna vera á ferð og flugi um landið.

Senda fólk á skriðjökla án mannbrodda
Ferðaþjónustufyrirtækin sjálf þurfa að tryggja öryggi viðskiptavina í jökla- og íshellaferðum. Dæmi eru um ferðamenn í íshellaferðum í Skaftafelli án mannbrodda. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir slys óásættanleg

Reykjavík um áramótin: Uppsprengd verð á AirBnb og varla laust hótelherbergi
Lítið framboð er á gistingu í Reykjavík um áramótin ef marka má vefsíðu AirBnb og nokkrar stikkprufur á vefsíðum hótela og gistiheimila sem blaðamaður gerði. Minna er uppbókað um jólin en Eva Silvernail, rekstrarstjóri Center hótela, segir að jólin séu eftirsóknarverðari nú en áður.

Nóvembervelta ferðamanna svipuð og í júlí 2013
Erlend greiðslukortavelta nam 15,3 milljörðum króna í nóvember síðastliðnum en það er 67 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra.

Ferðaþjónustan er vannýtt auðlind
Ferðaþjónustan hefur gert það að verkum að þjóðarskútan hefur siglt úr ölduróti hrunsins, skapað störfin sem glötuðust og hjálpað til við að greiða skuldirnar sem urðu til.

Sluppu án meiðsla eftir bílveltu
Tveir erlendir ferðamenn sluppu án meiðsla þegar bíll þeirra valt skammt vestan við Fosshótel Vatnajökul við Höfn í Hornafirði á þriðja tímanum í dag.