Aftur vinna Frakkar á sjálfsmarki og nú skilar það þeim í átta liða úr­slit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Randl Kolo Muani vill örugglega fá markið skráð á sig en boltinn breytti mikið um stefnu með viðkomu í Jan Vertonghen.
Randl Kolo Muani vill örugglega fá markið skráð á sig en boltinn breytti mikið um stefnu með viðkomu í Jan Vertonghen. EPA-EFE/FRIEDEMANN VOGEL

Frakkar voru mun hættulegri í leiknum en þurftu að bíða eftir sigurmarki sínu fram á 85. mínútu leiksins.

Varamaðurinn Randal Kolo Muani fékk þá boltann í teignum og fékk tíma til að snúa sér. Hann náði skoti að marki en það var frekar misheppnað.

Boltinn hafði hins vegar viðkomu í Jan Vertonghen sem gerði það algjörlega óverjandi fyrir Koen Casteels í marki Belga. Markið verður líklegast skráð sem sjálfsmark hjá belgíska miðverðinum.

Belgar sofnuðu algjörlega á verðinum og það kostaði þá leikinn. Frakkar halda áfram að vera í vandræðum með að skapa sér almennileg færi. Þeir voru 19-5 yfir í skotum en aðeins tvö þeirra fóru á markið.

Þetta var annar sigur Frakka á mótinu sem þeir vinna á sjálfsmarki en þeir unnu einnig Austurríksmenn 1-0 án þess að skora sjálfir. Þetta eru einu sigurleikir franska liðsins í mótinu.

Áður en kom að sigurmarkinu þá varði Mike, markvörður Frakka, mjög vel frá bæði Romelu Lukaku og Kevin De Bruyne eftir hraðar sóknir Belga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira