Enski boltinn

Manchester City tapaði dýrmætum stigum gegn Arsenal | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag. vísir/getty
Manchester City og Arsenal skildu jöfn 2-2 í ensku úrvalsdeildinni í dag og eru úrslitin skelfileg fyrir heimamenn í Manchester City.

Sergio Aguero skoraði fyrsta mark leiksins eftir tæplega tíu mínútna leik en Oliver Giroud jafnaði metin fyrir Arsenal aðeins tveimur mínútum síðar. Belginn Kevin de Bruyne kom heimamönnum yfir í upphafi síðari hálfleiksins og var útlitið bjart fyrir leikmenn City.

Alexis Sanchez jafnaði aftur á móti metin fyrir Arsenal þegar um tuttugu mínútur voru eftir af leiknum og svo fór sem fór. Manchester City náði aðeins í stig í leiknum og getur nú liðið tapað fjórða sætinu í hendurnar á grönnum sínum í United.

Manchester United er núna tveimur stigum á eftir City en á eftir tvo leiki óspilaða. Manchester City á aðeins eftir að spila einn leik og United mætir West Ham í miðri viku á Upton Park. Arsenal er sem fyrr í þriðja sætinu með 68 stig.  

Sergio Aguero kemur City yfir
Olivier Giroud jafnar fyrir Arsenal
Kevin de Bruyne kemur City yfir
Alexis Sanchez jafnar fyrir Arsenal



Fleiri fréttir

Sjá meira


×