Roberto Martinez fær ekki að stýra Everton í síðasta leiknum | Rekinn í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2016 13:38 Roberto Martinez. Vísir/Getty
Roberto Martinez er ekki lengur knattspyrnustjóri Everton því félagið ákvað að láta hann fara í dag þegar liðið á enn eftir að spila einn leik á tímabilinu. Everton er í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið tapaði illa í tveimur síðustu leikjum hans, fyrst 3-1 á móti Leicester City um síðustu helgi og svo 3-0 á móti Sunderland í gær. Everton komst í undanúrslit í báðum bikarkeppnunum á þessu tímabili en tapaði báðum undanúrslitaleikjunum. Það var heldur ekki að hjálpa Roberto Martinez að Everton-liðið tapaði 4-0 á móti nágrönnum sínum í Liverpool á dögunum. Everton hefur aðeins unnið fimm heimaleiki á öllu tímabilinu og liðið hefur aldrei fengið jafnfá stig á Goodison Park síðan að þriggja stiga reglan var tekin upp 1981. Roberto Martinez tók við liði Everton sumarið 2013 þegar David Moyes fór til Manchester United og þetta var því hans þriðja tímabil með liðið. Everton náði fimmta sæti á hans fyrsta tímabili á Goodison Park en datt niður í ellefta sæti á tímabilinu í fyrra. Liðið er nú í tólfta sæti og lokaleikurinn er á móti Norwich á heimavelli á sunnudaginn. Frank de Boer hætti sem þjálfari hollenska liðsins Ajax í dag en hann hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Everton. Umboðsmaður hans segir þó að engar viðræður hafi farið fram.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn HM í bakgarðshlaupum: Mari hleypur með rifinn liðþófa | „Veit ekki hvað bíður mín“ Sport Íslensku stelpurnar Evrópumeistarar í fjórða sinn Sport Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Fótbolti Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Í beinni: ÍA - Víkingur | Víkingar ætla að halda toppsætinu Íslenski boltinn Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Enski boltinn Körfuboltakvöld um Kane: „Finnst hann ekki hafa gert neitt hrikalegt“ Körfubolti Segja loforð svikin á meðan karfan fær stærsta íþróttahús landsins Sport Fleiri fréttir Í beinni: Man. Utd. - Brentford | Hitnar enn frekar undir Ten Hag? Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Sjá meira