Rooney bjargaði stigi fyrir Everton | Sjáðu mörkin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. október 2017 14:15 Everton og Brighton skildu jöfn 1-1 í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikurinn hafði verið afar bragðdaufur, en Everton þó verið meira með boltann. Anthony Knockaert kom nýliðunum yfir á 82. mínútu en Wayne Rooney jafnaði svo metinn úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Vítaspyrnan kom eftir aukaspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar, en Bruno Saltor braut af sér í viðskiptum við Dominic Calvert-Lewin inni í teig. Bæði lið eru með átta stig eftir leikinn, líkt og Swansea, West Ham, Stoke og Southampton, en þeir spila við Newcastle seinna í dag. Vítaspyrna Wayne Rooney gæti hafa bjargað starfi Ronald Koeman sem stjóra liðsins, en margir telja afar heitt undir sæti hans þessa dagana. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti