Fréttir
179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 334 ›
Meirihluti þjóðarinnar styður aðildarviðræður við ESB Meirihluti þjóðarinnar vill að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rúmlega fjörutíu prósent er fylgjandi fullri aðild Íslands að sambandinu samkvæmt nýrri könnun. Innlent 4.7.2024 12:26
Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Saksóknari krefst þess að Mohamad Kourani frá Sýrlandi verði dæmdur í sex til átta ára fangelsi fyrir hnífsstunguárás í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Kourani neitar alfarið sök þótt stunguárásin sé til á upptöku. Innlent 4.7.2024 12:22
Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfum heimilislæknis sem varð fyrir árás sjúklings á meðan hann var í vinnunni. Innlent 4.7.2024 12:21
Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Borgarstjórn í Marbella-borg á Spáni hefur neitað ásökunum um að bráðlega muni fólk vera sektað fyrir að kasta af sér þvagi í sjóinn á vinsælustu ferðamannaströndum Costa del Sol. Strendurnar eru gríðarlega vinsælar meðal Íslendinga. Erlent 4.7.2024 11:52
Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Í hádegisfréttum verður rætt við Vilhjálm Birgisson formann Verkalýðsfélags Akraness en í morgun var tilkynnt um að einn stærsti vinnustaður bæjarsins, Baader Skaginn 3X sé gjaldþrota. Erlent 4.7.2024 11:41
Lauginni lokað eftir að lögn fór í sundur Vatnslögn fór í sundur á Álftanesi í Garðabæ í dag með þeim afleiðingum að kalt vatn fór af hverfinu um klukkan ellefu. Gert er ráð fyrir að ekkert kalt vatn renni þar fram eftir degi. Leikskólum og sundlaug hverfisins hefur verið lokað. Innlent 4.7.2024 11:28
Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Oddur Steinarsson læknir er sérdeilis hlessa á mótstjórn GKG sem vill skriflegt vottorð frá manni sem telur sig þurfa að vera á golfbíl í komandi meistaramóti. Úlfar Jónsson segir að svona sé íþróttin – gæta verði jafnræðis með kylfingum. Þá eru læknar hugsi yfir sífelldri vottorðaskriffinsku. Innlent 4.7.2024 11:04
Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Zaniar Matapour, sem myrti tvo og særði fjölda annarra á skemmtistað hinsegin fólks í miðborg Óslóar í júní árið 2022, hefur verið dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar. Það er lengsti fangelsisdómur í norskri réttarsögu. Erlent 4.7.2024 10:46
Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Lögreglan var kölluð til klukkan hálf ellefu í gærkvöldi vegna hunds sem lék lausum hala á Reykjanesbrautinni skammt frá Grænásbraut. Umferð var stöðvuð á brautinni af stórum sendiferðabíl sem þveraði veginn á meðan vegfarendur reyndu að ná hundinum. Innlent 4.7.2024 10:34
Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Alls greindust 190 manns með nóróveiru í kjölfar smits sem kom upp á Hamborgarafabrikkunni síðasta sumar. Uppruni smitsins var ekki rakinn til ákveðinna matvæla. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu sóttvarnarlæknis fyrir árið 2023. Alls voru þrjár nóróveiruhópsýkingar skráðar á síðasta ári. Sú stærsta á Hamborgarafabrikkunni. Innlent 4.7.2024 10:00
Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Útlendingastofnun býr ekki yfir neinum gögnum sem gefa til kynna að þeir sem fengu dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar Palestínumanna á þessu ári og síðasta hafi nokkur tengsl við Hamas-samtökin. Samanlagt hafa 184 dvalarleyfi hafa verið veitt í ár og í fyrra. Innlent 4.7.2024 09:01
Bretar ganga að kjörborðinu Kjörstaðir hafa opnað í Bretlandi þar sem almenningur kýs í þingkosningum sem Rishi Sunak forsætisráðherra blés til með skömmum fyrirvara á dögunum. Erlent 4.7.2024 08:53
Bjart með köflum og hiti allt að sextán stigum Búast má við norðlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu, í dag, hvassast norðvestantil. Hægara veðri og björtu með köflum suðvestanlands, þar sem hiti gæti náð sextán stigum. Veður 4.7.2024 08:50
Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamydíu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ársskýrslu sóttvarnalæknis fyrir árið 2023. Þar segir að ráðast þurfi í frekari greiningu á hugsanlegum orsökum aukningar lekanda og sárasóttar til að efla forvarnir á markvissan hátt. Sýkingarnar geti haft alvarlegar langtíma afleiðingar. Innlent 4.7.2024 08:17
Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Neil Gaiman, heimsfrægur höfundur bóka á borð við The Sandman og Good Omens, hefur verið sakaður um kynferðisofbeldi af tveimur konum. Konurnar tvær segja hann hafa beitt þær ofbeldi þegar þær voru 20 og 21 árs og í sambandi með honum. Gaiman þvertekur fyrir að hafa nokkuð gert af sér. Erlent 4.7.2024 07:54
Leggja til íbúakosningu vegna framkvæmda Carbfix Viðreisn hyggst leggja fram tillögu innan bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, þar sem flokkurinn er í minnihluta, að íbúakosning fari fram um leyfi Carbfix til þess að koma upp aðstöðu fyrir loftslagsverkefnið Coda Terminal. Innlent 4.7.2024 07:30
Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Endurupptökudómur hefur fyrirskipað að mál Sigurðar Kristins Árnasonar verði tekið upp að nýju að kröfu Ríkissaksóknara. Sigurður Kristinn var í desember síðastliðnum dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar. Þar af voru fimm mánuðir óskilorðsbundnir, sem er bannað. Innlent 4.7.2024 06:56
Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Garðabær bíður núna eftir því að ná samkomulagi við Vegagerðina um endurbætur á Flóttamannaleiðinni svokölluðu. Til hefur staðið að tengja Urriðaholtsstræti og Holtsveg við veginn í tíu til fimmtán ár síðan að skipulag fyrir hverfið var gert. Eins og stendur er aðeins ein leið í og úr hverfinu. Innlent 4.7.2024 06:22
Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti eykur forskot sitt á Joe Biden sitjandi forseta í nýrri könnun New York Times. Erlent 3.7.2024 23:30
„Í mínum huga alveg útilokað“ „Það er í mínum huga alvega útilokað að þetta teljist stórfellt gáleysi,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, inntur eftir viðbrögðum við ákvörðun bæjarráðs Vestmannaeyjarbæjar um að höfða skaðabótamál á hendur fyrirtækinu. Innlent 3.7.2024 22:45
Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Smiður á Selfossi gerir lítið annað þessa dagana en að skjóta úr byssu og þá marga klukkutíma á dag. Ástæðan er einföld. Hann er að fara að keppa fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í París en hann mun keppa í haglabyssuskotfimi. Innlent 3.7.2024 21:05
Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Framkvæmdastjóri Ormsson segir dapurlegt að deilur við Reykjavíkurborg um auglýsingaskilti félagsins þurfi að fara fyrir dómstóla. Innlent 3.7.2024 21:01
Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Verkefnastjóri á höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar segir jarðgangagerð undir Miklubraut með tengingu við Kringlumýrarbraut hafa ýmsa kosti fram yfir stokk. Gangagerð myndi raska umferð minna á framkvæmdatíma og bjóða upp á meira pláss til borgarþróunar. Innlent 3.7.2024 20:55
Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Íslenska ríkið verður af gríðarlegum fjármunum á hverju ári sem lög eru ekki sett í kringum starfsemi erlendra veðmálasíðna hér á landi segir formaður starfshóps dómsmálaráðuneytisins. Óhjákvæmilegt sé fyrir stjórnvöld að grípa inn í. Ekkert hefur gerst í málinu síðan starfshópurinn skilaði skýrslu fyrir einu og hálfu ári. Innlent 3.7.2024 19:48
Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Í kvöldfréttum Stöðvar 2 er fjallað um að íslenska ríkið verði af verulegum fjármunum á meðan lög eru ekki sett í kringum starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja hér á landi. Ekkert hefur gerst í málinu síðan starfshópur skilaði skýrslu fyrir hálfu öðru ári. Innlent 3.7.2024 18:01
Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Í tilkynningu talsmanns Hvíta hússins er þvertekið fyrir að Joe Biden Bandaríkjaforseti sé efins um að halda framboði sínu til forseta til streitu. Tilkynningin kemur í kjölfar fréttar um að Biden hefði tjáð nánum bandamanni að hann væri að vega og meta það að hætta við. Erlent 3.7.2024 17:34
Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Ingu Sæland þingmanni Flokks fólksins hugnast illa „verulega ljót“ lagabreyting sem tekur gildi um áramótin. Lagabreytingin kveður á um að Íslendingar sem búsettir eru erlendis og fá meira en 75 prósent tekna sinna frá tryggingastofnun, þurfi að sækja sérstaklega um að fá persónuafsláttinn sinn. Inga segir ómaklega vegið að eldri borgurum og öryrkjum. Innlent 3.7.2024 17:11
Vestmannaeyjabær höfðar skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni Bæjarráð Vestmannaeyjarbæjar hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni hf. vegna mikils tjóns sem skip stöðvarinnar olli á neysluvatnslögn milli lands og Eyja síðasta haust. Innlent 3.7.2024 17:08
Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Maðurinn sem réðst á Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, á Kolatorgi Kaupmannahafnar í síðasta mánuði hefur verið ákærður fyrir árás á embættismann. Erlent 3.7.2024 16:18
Bóndi þvingaður til að afhenda hrút Matvælaráðuneytið úrskurðaði nýlega að bónda á Norðurlandi væri skylt að afhenda Matvælastofnun hrút til að kanna útbreiðslu á riðuveiki. Innlent 3.7.2024 15:58