Formúla 1

Alonso vill bíl sem getur sigrað

Fernando Alonso segist vera líklegri til að halda tryggð við Renault ef liðið getur komið með bíl sem getur unnið keppnir. Alonso fór aftur til Renault og skrifaði undir tveggja ára samning en hefur aðeins fengið sex stig úr þremur fyrstu keppnum tímabilsins.

Formúla 1

Framtíð Mosley ræðst í júní

Framtíð Max Mosley, forseta Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, mun ráðast á þingi sambandsins þann 3. júní næstkomandi. Þar mun fara fram leynileg kosning félagsmanna um hvort Mosley þyki stætt á að halda starfinu eftir hneyksli í einkalífinu.

Formúla 1

Hamilton hefur farið aftur

Fyrrum heimsmeistarinn Niki Lauda segir að ungstirninu Lewis Hamilton hjá McLaren hafi farið aftur frá því í fyrra. Hamilton náði aðeins 13. sæti í Barein-kappakstrinum um helgina og hefur alls ekki náð sér á strik síðan hann sigraði á opnunarmótinu í Ástralíu.

Formúla 1

Hamilton: Ég brást liðinu

Lewis Hamilton náði sér ekki á strik í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina og hafnaði í 13. sæti eftir mistök í ræsingu. Hann missti fyrir vikið toppsætið í stigakeppni ökuþóra.

Formúla 1

Pólverji á ráspól í Barein

Pólski ökuþórinn Robert Kubica, sem ekur fyrir Sauber, verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein á morgun. Hann var fljótastur allra í tímatökunni í morgun. Felipe Massa hjá Ferrari var næstfljótastur.

Formúla 1

Max Mosley: Ég gerði ekkert rangt

Max Mosley, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, ætlar í mál við breska vikublaðið News of the World sem birti frétt síðastliðinn sunnudag um hópkynlíf Mosleys með vændiskonum í nasistabúningum. Hann segist ekkert rangt hafa gert.

Formúla 1

Rosberg ók hraðast á lokaæfingunni

Finnski ökuþórinn Niko Rosberg, sem ekur fyrir Williams-liðið, var fljótastur allra á lokaæfingu fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Barein sem lauk í morgun. Þar með náði Rosberg að skjóta Ferrari-ökumanninum Felipe Massa ref fyrir rass en hann bar höfuð og herðar yfir ökumenn á æfingum í gær.

Formúla 1

Hamilton lenti í óhappi

Lewis Hamilton átti ekki góðan dag í Barein í dag þegar lenti í árekstri og þurfti að hætta keppni. Hann slapp þó ómeiddur og verður með í keppninni um helgina.

Formúla 1

Aukinn þrýstingur á Mosley um að hætta

Aukins þrýstings gætir nú á Max Mosley, yfirmann Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, um að segja af sér í embætti. Hann hefur verið borinn þungum sökum vegna hegðunar sinnar í einkalífinu.

Formúla 1

Ferrari með yfirburði

Ferrari bílarnir voru í nokkrum sérflokki á fyrstu æfingunum fyrir Barein kappaksturinn í Formúlu 1. Brasilíumaðurinn Felipe Massa var á meðal fyrstu manna út á brautina og náði bestum tíma allra og félagi hans Kimi Raikkönen kom næstur. Lewis Hamilton á McLaren náði þriðja besta tímanum.

Formúla 1

Krísufundur vegna Mosley

Max Mosley hefur farið fram á sérstakan krísufund hjá Alþjóða Akstursíþróttasambandinu í kjölfar alvarlegra ásakana sem hann hefur verið borinn í fjölmiðlum að undanförnu.

Formúla 1

F1-lið fordæma Mosley

Fjórir bílaframleiðendur sem eiga keppnislið í Formúlu 1-mótaröðinni hafa fordæmt hegðun Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins.

Formúla 1

Sérefni um Kimi Raikkönen hjá Stöð 2 Sport

Sérstakur umræðuþáttur um Kimi Raikkönen og næsta Formúlu 1 mót er í undirbúningi um helgina hjá Stöð 2 Sport, en stöðinni áskotnaðist efni um kappan frá hans yngri árum. Efnið hefur aldrei verið sýnt hérlendis og á fimmtudaginn verða sérstakir aðdáendur Raikkönen hérlendis kallaðir til í þættinum Rásmarkið.

Formúla 1

Toyota nærri toppliðunum í Formúlu 1

Jarno Trulli telur að Toyota sé komið í þá stöðu að vera rétt á eftir toppliðunum í Formúlu 1. Hann varð í fjórða sætií Malasíu um helgina. Næsta mót er í Barein um aðra helgi og þar æfði Toyota í vetur ásamt Ferrari, sem gæti komið liðsmönnum til góða

Formúla 1

Eddie Jordan lagði stein í götu Force India

Írinn Eddie Jordan lét leggja steina í innkeyrsluna hjá Force India liðinu á Silverstone í Bretlandi. Hann segir liðið ekki hafa að fullu greitt skuldir sínar við sig. Hann seldi lið sitt til Midland, sem aftur seldi Force India. En allt hefur ekki verið gert upp.

Formúla 1

Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu

Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki.

Formúla 1

Raikkonen vann í Malasíu

Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni.

Formúla 1

Dómarar refsa ökumönnum McLaren

Dómarar Formúlu 1 mótsins í Malasíu ákváðu í hádeginu að refsta Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton fyrir að hafa truflað Nick Heidfeld á BMW og Fernando Alonso á Renault í lokahring þeirra í tímatökunni.

Formúla 1

Ökumenn McLaren kallaðir fyrir dómara

Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru kallaðir fyrir dómara mótsins á Sepang brautinni í dag, eftir athugasemd frá Nick Heidfeld og Fernando Alonso. Þeir töldu að McLaren hefðu sýnt vítavert gáleysi þegar þeir hægðu á bílnum sínum eftir að hafa lokið sínum hraðasta hring.

Formúla 1

Massa fremstur á ráslínu í Malasíu

Félagarnir Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða frremstir á ráslínu í malasíska kappakstrinum á aðfaranótt sunnudags. Massa náði besta tíma í tímatökum í nótt og Raikkönen kom honum næstur.

Formúla 1

24,1 % áhorf á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport

Ljóst er að Formúlu 1 útsendingar á Stöð 2 Sport hafa fallið vel í kramið og íþróttin heldur sinni stöðu sem vinsælt sjónvarpsefni, þrátt fyrir að hafa skipt um umhverfi, horfið af RÚV yfir á Stöð 2 Sport.

Formúla 1