Gagnrýni
46 47 48 49 50 51 52 53 54 … 67 ›
Einfalt en margslungið Þriðja plata Hildar Guðnadóttur fyrir Touch-útgáfuna er athyglisvert sambland af raftónlist og nýklassík. Á heildina litið er þetta mjög flott verk sem virkar best spilað á góðum styrk. Í senn einfalt og margslungið. Gagnrýni 20.6.2012 06:00
Í hjarta veraldar Besta bók Elísabetar. Einlægur og fallegur texti og knöpp ljóð með sterku myndmáli sem fara með lesandann í ferðalag inn í hjarta veraldar. Gagnrýni 18.6.2012 17:30
Dáleiðandi lágtækni Á hinu annars ruglingslega og óaðlaðandi Hlemmsvæði í Reykjavík, er hægt að njóta myndlistar í nokkrum mæli. Svæðið hefur enda í áratugi verið í nágrenni við merkar listastofnanir eins og Myndlista- og handíðaskólann – síðar Listaháskólann og Kjarvalsstaði, að ógleymdu Gallerí Hlemmi sem rekið var um nokkurt skeið við Hlemmtorgið. Gagnrýni 14.6.2012 12:30
Tilfinningarík og persónuleg Það var ólík sýn sem beið manns þegar maður gekk inn í Elborgarsal Hörpu á laugardagskvöldið, heldur en á tónleikum Bryans Ferry um daginn eða á Hljómskálatónleikunum. Á sviðinu voru bara tveir stólar, eitt lítið borð með drykkjum á, þrír hljóðnemar og nokkrir litlir sviðshátalarar. Gagnrýni 13.6.2012 20:00
Eins manns stórskotalið Hljóðhnökrar og pirringur í upphafi viku fyrir samblandi af eldmóði og reynslu Costello. Frábærir tónleikar. Elvis var einn á sviðinu í hartnær þrjá klukkustundir og lagði allt sitt í giggið svo rann af honum svitinn, sem er alltaf jafn mikið ánægjuefni. Gagnrýni 12.6.2012 11:00
Grúví danspopp Hárdoktorinn Jón Atli og Gísli Galdur með flotta rafpoppplötu. Lögin eru misgóð og sums staðar mætti vera aðeins meiri kraftur, en á heildina litið er þetta samt mjög fín danspoppplata sem óhætt er að mæla með. Gagnrýni 11.6.2012 16:00
Alþjóðlegt fjölbragðapopp Tónlist Kiriyama Family er mjög skemmtilegt sambland af tónlist ólíkra áhrifavalda, en í henni felst líka ný nálgun á viðfangsefnið. Þetta er tækifærissinnuð tónlist í bestu merkingu þess orðs. Ég er strax farinn að hlakka til að heyra meira! Gagnrýni 8.6.2012 14:00
Köld krumla fortíðarinnar Dauði næturgalans er þriðja bókin sem fjallar um dönsku hjúkrunarkonuna Ninu Borg. Hún starfar í búðum fyrir flóttamenn í Kaupmannahöfn og fléttast inn í þeirra flækjur og fortíð. Nina er ágætlega uppbyggður karakter og hennar flókna sambandi við sjálfa sig og þörfina til að bjarga heiminum eru vel gerð skil í bókinni. Gagnrýni 8.6.2012 06:00
Frændinn loks mættur Prometheus er áhugaverð og kærkomin, sérstaklega ef bág staða vísindaskáldskapar nútímans er tekin með í reikninginn. Það er þó ekki sjálfgefið að ástríðufyllstu aðdáendur Alien-seríunnar taki þessum náskylda frænda opnum örmum, þó hans hafi verið beðið í ofvæni. Umgjörðin er glæsileg og andrúmsloftið þrælmagnað. Þess vegna á Prometheus skilið svo miklu vandaðra handrit. Gagnrýni 7.6.2012 20:00
Sígildar vangaveltur Myndlistarþáttur Listahátíðar í Reykjavík í ár heitir (I)ndependent People, eða Sjálfstætt fólk. Skírskotunin í Ísland, Íslendinga, íslenska þjóðarsál (er hún til?) og jafnvel íslenska pólitík samtímans er ekki víðsfjarri í íslenska heitinu, en í því enska er snúið upp á hugmyndina með því að taka I-ið í Independent út fyrir sviga, eða sjálfið tekið úr sjálfstæðinu. Þessar vangaveltur um sjálfið í samhengi við hópinn sem það tilheyrir, eða tilheyrir ekki, eru sígildar, en framsetningin í þessari sýningu er á margan hátt nútímaleg. Gagnrýni 7.6.2012 06:00
Fínir Hljómskálafélagar Listahátíðardagskrá Hljómskálans í Hörpu tókst prýðilega. Á dagskránni voru ný og gömul lög og nokkur þeirra laga sem sérstaklega hafa verið samin fyrir sjónvarpsþættina. Tónleikarnir fóru rólega af stað og í byrjun var hljómburðurinn í salnum slæmur, a.m.k. þar sem ég sat á ellefta bekk. Maður hafði smá áhyggjur af því að þetta yrði sundurklippt og fullt af kynningum þar sem tónleikunum var sjónvarpað beint, en þær áhyggjur voru óþarfar; tónleikaformið var tekið fram yfir sjónvarpsþáttaformið og tónlistin fékk að hljóma án truflana. Gagnrýni 6.6.2012 20:00
Skemmtilegur trúðleikur Leikrit Hallgríms H. Helgasonar um þessa tvo í raun einmana menn er sneisafullt af snjöllum tengingum og margt í samskiptum þeirra botnar í ýmsu sem gerst hefur hér á landi. Manni varð hugsað til margra þekktra tvíeykja í bókmenntum og bíómyndum, og hvernig annar nær valdi yfir hinum er sérlega vel gert. Skemmtilegur trúðaleikur, aðeins of lengi í gang, en sprenghlægilegur í lokin. Gagnrýni 6.6.2012 06:00
Sviplaust og leiðinlegt Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Listahátíð var boðið upp á stórvirkið Rómeó og Júlíu eftir Berlioz. Því hefði betur verið sleppt. Litlaus túlkun hljómsveitarstjóra, drafandi kórsöngur og mistækir einsöngvarar. Gagnrýni 5.6.2012 20:00
Hugljúfur Hemingway Hinn snjalli brúðulistamaður Bernd Ogrodnik hefur enn og aftur dottið niður á góða frásögn sem smellur að aðferðum hans við sína listsköpun. Í agnarlitlu þorpi á suðrænum slóðum hanga nokkur hvítkölkuð hús á sjávarkambi, fyrir utan er hafið endalaust, stórt og magnað. Inni í einu þessara litlu húsa býr hann, þessi maður sem leggst til atlögu við stóra og kannski stærsta fiskinn í sjónum. Gagnrýni 5.6.2012 10:00
Ekki eitt heldur fimm Tónleikarnir voru haldnir af Duo Harpverk. Tvíeykið samanstendur af þeim Katie Buckley hörpuleikara og Frank Aarnink slagverksleikara. Þau fluttu verk eftir fimm tónskáld. Glæsilegur hljóðfæraleikur, verkin flest áhugaverð, en tónleikaskráin hroðvirknisleg. Gagnrýni 4.6.2012 20:00
Út í sólarlagið Berglind María Tómasdóttir er óvanalegur flautuleikari. Hún er óhrædd við að gera tilraunir. "Ég er eyja“ nefndist margmiðlunargerningur eftir hana. Hann var fluttur á Listahátíð í Kaldalóni í Hörpu á laugardaginn. Gagnrýni 4.6.2012 12:00
Dásamlegur söngur Einhverjir bestu ljóðatónleikar sem hér hafa verið haldnir. Strax á fyrstu tónunum var ljóst að þetta yrði skemmtileg stund. Prégardien hefur magnaða rödd. Tónar á háa og lága tónsviðinu voru jafnskýrir; allt tónsviðið var í einstöku jafnvægi. Svo var sviðsframkoman skemmtilega blátt áfram og laus við tilgerð. Gagnrýni 4.6.2012 11:00
Silkimjúkt og sefandi Asonat er samstarfsverkefni tveggja vel þekktra íslenskra raftónlistarmanna, Jónasar Þórs Guðmundssonar og Fannars Ásgrímssonar. Jónas hefur mest notast við aukasjálfið Ruxpin, en Fannar er annar helmingur dúósins Plastic Joy. Ruxpin hefur gefið út nokkrar fínar plötur bæði hjá hérlendum og erlendum plötufyrirtækjum, síðast kom Where Do We Float From Here? sem bandaríska útgáfan n5MD gaf út árið 2009. n5MD gefur líka út tónlist Asonat. Gagnrýni 31.5.2012 09:00
Aftur til 1997 Svartklæddu mennirnir hafa engu gleymt. Þristurinn er skemmtileg viðbót við seríuna og er betri framhaldsmynd en önnur myndin. Will Smith er fæddur í sitt hlutverk og töffaraskapur Tommy Lee Jones hefur ekkert minnkað þó leikarinn sé nú á sjötugsaldri. Gagnrýni 30.5.2012 10:00
Firnagóður Ferry Bryan Ferry heillaði troðfullan Eldborgarsal á sunnudagskvöldið. Ferry lék á alls oddi og sýndi að hann á nóg eftir. Á heildina litið firnagóðir tónleikar sem stóðust allar væntingar – og þær voru miklar! Gagnrýni 29.5.2012 18:00
Alltumlykjandi og áhrifarík Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fín plata. Hún kemur á óvart, hún er svolítið seintekin og hún krefst fullrar athygli hlustandans. Gefi maður henni sjéns uppsker maður hins vegar ríkulega. Gagnrýni 25.5.2012 12:00
Barsmíðar og bollukinnar Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að halda sig fjarri. Handritið kæmist vel fyrir handskrifað á glasamottu en tæknivinnan er vel úthugsuð og handalögmálin gríðarlega sannfærandi. Gagnrýni 24.5.2012 22:00
Súrrealísk sumargjöf Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlistinni mætti helst lýsa sem lágstemmdu indípoppi sem veit upp á hár hvaða áhrifum það vill ná fram. Áreynslulausri og grípandi en þó blessunarlega lausri við of augljósa "húkka". Gagnrýni 24.5.2012 10:30
Innan þægindarammans Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjórinn Tim Burton gerði nokkrar frábærar myndir á fyrri hluta ferils síns en hefur undanfarin ár helgað sig óspennandi fjöldaframleiðslu. Samstarf hans við Depp og tónskáldið Danny Elfman er komið vel fram yfir síðasta söludag og satt að segja hafði ég efasemdir um að Burton hefði nokkuð fram að færa árið 2012. Gagnrýni 23.5.2012 20:00
Gengu af göflunum Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðum. Eins og við var að búast gengu áheyrendurnir af göflunum. Undirritaður var þar á meðal. Við klöppuðum Volodos fram hvað eftir annað. Gagnrýni 23.5.2012 10:00
Starað í poppið Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til enda en var þrátt fyrir það hryllilega fyndin. Brüno olli vissulega vonbrigðum en í The Dictator gengur ekkert upp. Sacha reynir að taka allt og alla í gegn. Ferill hans sem grínisti er næstur á dagskrá. Gagnrýni 21.5.2012 10:00
Norah prófar eitthvað nýtt Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til nýja bakgrunn fyrir ljúfa poppið hennar. Gagnrýni 16.5.2012 11:00
Út um þúfur Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á hann. Fyrri hluti myndarinnar er áhugaverður og margoft glittir í gamla Gibson. En um miðbik myndar fer sögumennskan út um þúfur og úr verður stefnulaust sull sem vill bæði vera hörkuspennandi og þrælfyndið, en er hvorugt. Gagnrýni 11.5.2012 15:00
Endurvinnslukóngurinn Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hvert öðru betra. Jack White býr til nýtt úr gömlu og útkoman er fyrst og fremst hans. Gagnrýni 10.5.2012 14:30
Barist í blokk Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ekki vantar áhugann og troðfullt var af fólki á ósköp venjulegri tíusýningu á The Raid: Redemption um síðustu helgi, og var meira að segja gömlum eldhússtól laumað inn í sal til þess að einn til viðbótar gæti notið ærslagangsins. Gagnrýni 9.5.2012 12:30