
Lífið

Sögð hafa slitið trúlofuninni
Bandarísku stórleikararnir Channing Tatum og Zoe Kravitz eru hætt saman og slitið trúlofun sinni.

Er endaþarmsörvun bara fyrir homma?
Spurning barst frá lesenda svo hljóðandi: „Mér finnst gott að nota dildó á sjálfan mig. Mér finnst það mjög tabú meðal gagnkynhneigðra karla, en er það algengt eða er það bara fyrir samkynhneigða karla?” - 30 ára karl

Teri Garr látin
Leik- og söngkonan Teri Garr er látin 79 ára að aldri. Hún greindist með MS sjúkdóminn árið 2002 og árið 2006 fékk hún blóðtappa. Teri var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni Tootsie. Þá lék hún einnig í Young Frankenstein og lék móður Phoebe í þáttaröðinni Friends.

Gerður í Blush gladdi konur í Köben
Mikil stemning ríkti á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn liðna helgi þegar 120 íslenskar konur komu saman til að heiðra framúrskarandi fyrirmyndir. Viðburðurinn, Seigla og sigrar, var á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu í Danmörku.

Magnað að aðdáendur flúri textana á sig
Í haust eru tíu ár frá því að tónlistarmaðurinn Jón Jónsson gaf út plötuna Heim og ætlar hann að flytja hana í heild sinni næstkomandi laugardagskvöld í Salnum í Kópavogi. Hann segir að margt hafi drifið á daga sína frá því að platan kom út en á plötunni flutti hann í fyrsta skiptið lög á móðurmálinu.

Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur fengið nafnið Kilja Kormákur.

Kenningin sem knúði valdaránstilraunina
Í nýjasta þætti Skuggavaldsins er sagt að 6. janúar 2021 verði lengi minnst sem eins dekksta dags í sögu Bandaríkjanna. Þann dag brutust hundruð reiðra mótmælenda, sumir vopnaðir og knúnir áfram af samsæriskenningunni QAnon, inn í þinghúsið í Washington D.C.

Støre lét sig ekki vanta í Sundhöllina
Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs lét sig ekki vanta í Sundhöll Reykjavíkur þegar hún opnaði í morgun. Hann skellti sér í heita pottinn eldsnemma og var eftir ferðina tilbúinn í fundardag með leiðtogum hinna Norðurlandanna.

Bündchen 44 ára og ólétt
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen og þjálfarinn Joaquim Valente, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Tímaritið People hefur fengið þetta staðfest.

Töpuðu dómsmáli vegna húss sem reyndist fullt af myglu
Þau Jóhanna Guðný Gylfadóttir og Þorgils Sigvaldason fjárfestu í einbýlishúsi í Kórahverfinu í Kópavoginum árið 2017. Eftir að hafa búið í húsinu í nokkur ár kom í ljós nánast altjón á eigninni sökum myglu.

Nær dauða en lífi eftir svæsna matareitrun á Michelin stað
Sigríður Höskuldsdóttir er búsett í Maastricht í Hollandi þar sem hún leggur stund á meistaranám í lífeindafræði og nýtur þess til hins ítrasta. Blaðamaður ræddi við hana um lífið og ævintýrin úti.

Skagastelpan sem gerðist menntaskólakennari í Flórída
Röð atvika leiddi til þess að Veronica Líf Þórðardóttir fékk boð um að gerast efnafræðikennari við menntaskóla í Melbourne, 90 þúsund manna borg suðaustur af Orlando í Flórída. Þar hefur hún starfað í eitt og hálft ár og tekist á við ýmsar áskoranir, enda talsverður munur þegar kemur að bandarísku og íslensku skólakerfi.

Nýfæddur sonur Gylfa og Alexöndru kominn með nafn
Alexandra Helga Ívarsdóttir, eigandi barnafataverslunar, og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður eignuðust dreng þann sautjánda október. Nú hefur drengurinn fengið nafnið Róman Þór Gylfason.

Hryllilegar og gómsætar uppskriftir fyrir hrekkjavökuna
Matgæðingurinn Berglind Hreiðarsdóttir, hjá Gotterí og gersemar, er farin að telja niður dagana í hrekkjavökuna, sem fer fram þann 31. október næstkomandi. Í tilefni hátíðarinnar deildi hún tveimur hryllilega gómsætum uppskriftum með fylgjendum sínum á Instagram sem eru fullkomnar í hrekkjavökuboðið.

Steindi skildi ekkert í dönsku á Barbie safni í Köben
Í síðasta þætti af 1 Stjarna voru þeir Steindi og Dóri mættir til Köben til að upplifa allt það versta sem borgin hefur upp á að bjóða.

„Hvar annars staðar átti hjónaherbergið að vera en á sviðinu?“
Hjónin Mummi Týr og Þórunn Wolfram Pétursdóttir hafa innréttað og komið sér vel fyrir í gömlu samkomuhúsi í Grímsnesi þar sem sviðið í salnum er með hjónarúminu og tjaldi fram í salinn.

Ragga Holm og Elma eignuðust dreng
Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm og kærastan hennar Elma Valgerður eignuðust frumburð sinn þann 22. október síðastliðinn. Öllum heilsast vel og segist Ragga ekki geta sett það í orð hve stolt hún er af konunni sinni.

Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka
Mikið var um veisluhöld um helgina þar sem árshátíðir fyrirtækja og hrekkjavökuteiti voru áberandi á samfélagsmiðlum. Stjörnur landsins tóku forskot á sæluna og klæddu sig upp sem Hollywood-stjörnur. Helgi Ómars skellti sér í jógakennaranám á meðan Elísabet Gunnars eyddi vetrarfríinu með börnunum í Vestmannaeyjum.

Héldu skírnarveislu á Hótel Borg
Inga Tinna Sigurðardóttir, stofnandi og framkvæmdarstýra Dineout, og Logi Geirsson fyrrum landsliðsmaður í handbolta og einkaþjálfari, gáfu dóttur sinni nafn við hátíðlega athöfn um helgina. Parið greindi frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram.

„Þau hlæja að þessum fíflagangi en mér er dauðans alvara“
Græna jólatertan frá Myllunni kann að virðast ósköp venjuleg brún lagkaka með hvítu kremi en fyrir stórum hópi Íslendinga er hún svo miklu meira en það. Stærsti aðdáandi jólatertunnar frystir hana í tugatali til að geta borðað hana árið um kring og hefur jafnvel ferðast með hana til útlanda.

Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar
Lárus Thor er 23 ára nemi, búsettur á Seltjarnarnesi. Hann er mikill fótboltaáhugamaður og þykir fátt betra en að fá sér góða nautasteik. Lárus er Einhleypan á Vísi.

Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka
Ferðalag Tinnu Rúnarsdóttur til Srí Lanka skilaði ekki aðeins dýrmætum tíma með systur sinni og ömmu heldur uppgötvaði hún líka að hún á frænkur á Íslandi. Svar úr DNA-prófi kom Tinnu í opna skjöldu sem veltir nú fyrir sér hvort móður hennar hafi verið nauðgað eða hún haldið fram hjá.

Krakkatían: Skólarapp, fótbolti og landafræði
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!

„Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“
„Þegar ég var bara sjö ára gömul segi ég við konu sem var að vinna á göngunum í grunnskólanum mínum: Þú þarft að muna eftir mér. Birna Rún Eiríksdóttir, mundu nafnið því ég verð nefnilega mjög þekkt leikkona. Ég veit ekkert hvaðan þetta kom,“ segir leikkonan, veislustjórinn, TikTok stjarnan og uppistandarinn Birna Rún, sem er viðmælandi í Einkalífinu.

Þakklátur Grindvíkingum fyrir traustið
Sigurður Sigurðsson ljósmyndari og björgunarsveitarmaður, betur þekktur sem Siggi Sig, segist gríðarlega þakklátur íbúum Grindavíkur fyrir traustið í hans garð en hann gaf á dögunum út ljósmyndabókina Reykjanes vaknar. Um er að ræða bók með ljósmyndum og stuttum frásögnum af atburðum á Reykjanesi frá janúar 2020 til haustsins 2024.

Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar
Djúpt inni í skógarþykkni sænsku Dalanna felur sig tungumál sem er nær óskiljanlegt Svíum. Í litlum afskekktum dal í um fjögurra tíma akstursfjarlægð frá Stokkhólmi tala um tvö þúsund manns tungumálið elfdælsku sem hefur að geyma forneskjuleg einkenni sem skáka jafnvel sjálfri íslenskunni.

Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn
Lögfræðingurinn Marta Matthíasdóttir er búsett í París um þessar mundir og var það ákveðin skyndiákvörðun hjá henni. Hún er þar í viðbótar meistaranámi í lögfræði og nýtur þess sem Parísarborg hefur upp á að bjóða. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti.

Fréttatía vikunnar: Alþingi, tónlist og íþróttir
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Uppgefin á stressinu um miðnætti
Vinahjón segjast hafa fengið nóg af því að hafa einungis getað valið á milli sælgætis og plastsdrasl eða rándýrra leikfanga fyrir jólasveina til að gefa börnum þeirra í skóinn. Þau ákváðu því að taka málin í eigin hendur og taka á sig þriðju vaktina fyrir jólasveina.

Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir
Edda Falak, baráttukona og áhrifavaldur, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eignuðust fallegan dreng fyrir tveimur mánuðum. Um fyrsta barn parsins er að ræða. Þessu greinir Edda frá í færslu á Instagram-reikning sínum.