Neytendur

Hækkandi húsnæðisverð vegi þyngst
Hækkun verðbólgu er ekki séríslenskt fyrirbæri heldur færist hún einnig í aukana erlendis, segir aðalhagfræðingur Landsbankans. Frá aldamótum hafi dregið verulega úr sveiflum hér á landi þó að verðbólga hafi verið óstöðugari á Íslandi en í okkar helstu viðskiptalöndum.

„Ég held að þetta sé framtíðin og ég er glaður að fá að taka þátt í því að búa hana til“
Náttúruvín nýtur vaxandi vinsælda hér á landi og segja vínsérfræðingar að timburmenn læðist síður að manni vegna hreinna efna í víninu. Fréttastofa fékk að vita allt um þessa vinsælu vöru sem sérfræðingarnir segja framtíðina.

Innkalla próteinpönnukökur vegna aðskotahlutar úr málmi
Heilbrigðiseftirlitið hefur stöðvað sölu og hafið innköllun á pönnukökudufti vegna mögulegs aðskotahlutar úr málmi, eins og það er orðað í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirlitinu. Varan er af þeim sökum ekki talin örugg til neyslu.

„Það eru allir að boða hækkanir“
Búast má við að verðhækkanir á næstu vikum muni svipa til þeirra sem sáust eftir hrun, að sögn framkvæmdastjóra Bónus. Hins vegar sé staðan í dag sú að bæði innlendir og erlendir aðilar hafi boðað hækkanir en að í hruninu hafi það nær eingöngu átt við um innfluttar vörur. Hann segir allt gert til þess að milda hækkanirnar eins og hægt er.

Heimapróf innkölluð vegna hættu á fölskum jákvæðum niðurstöðum
Lyfjastofnun kallar inn tvær lotur af Genrui SARS-CoV-2 Antigen Test Kit (Colloidal Gold) sjálfsrófi vegna hættu á fölskum jákvæðum niðurstöðum við notkun prófsins.

Hafði aftur betur gegn Bílabúð Benna vegna illa lyktandi Porsche
Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Bílabúð Benna þurfi að greiða Ólöfu Finnsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dómstólasýslunnar, fjórtán milljónir vegna gallaðs Porsche-jeppa.

N1 Rafmagn biðst velvirðingar og endurgreiðir viðskiptavinum
N1 Rafmagn hefur ákveðið að selja alla raforku á sama verðtaxta til heimila frá og með 1. janúar 2022, hvort sem viðskiptavinir hafi skráð sig sjálfir í viðskipti eða komið í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda.

Tryggingafélagið Vörður og Stofnfélagar Sjóvá almennt með lægsta verðið
Tryggingafélagið Vörður var með lægsta tilboð í tryggingar í fimm tilfellum af sex samkvæmt nýrri verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ. Samkvæmt könnuninni var minni verðmunur á tilboðum tryggingafélagana innihéldu þau margar ólíkar tryggingar.

„Ef þú gerir ekki neitt þá ferðu á hæsta rafmagnsverð Íslandssögunnar“
Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar gagnrýnir harðlega að ekki sé virkt eftirlit með sölu á raforku í landinu og segir að svindlað sé á neytendum með núverandi fyrirkomulagi. Hún segir óvanalegt að ríkið geti ákveðið til lengri tíma við hvaða fyrirtæki fólk eigi í viðskiptum við og kallar eftir aukinni umræðu.

MAST innkallar ólöglegt hrökkbrauð
Matvælastofnun hefur varað við neyslu hrökkbrauðs frá fyrirtækinu Sigdal Bakeri. Rotvarnarefnið ethyline oxide fannst í hráefni sem notað var við framleiðslu á hrökkbrauðinu. Ólöglegt er að nota efnið við matvælaframleiðslu í Evrópu.

Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“
Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar.

Íslendingar óðir í búbblurnar árið 2021
Sala á freyðivíni og kampavíni jókst um 17 prósent á milli ára á meðan sala dróst saman í flest öllum öðrum söluflokkum í Vínbúðinni. Mestur var samdrátturinn í sölu á rauðvíni, eða um 5,9 prósent.

Slær á fingur Costco vegna tilhögunar á endurnýjun aðildar viðskiptavina
Neytendastofa hefur slegið á fingur Costco á Íslandi vegna tilhögunar og kynningar á endurnýjun viðskiptaaðildar hjá versluninni. Er hún talin villandi, ósanngjörn í garð neytenda og til þess fallin að hafa veruleg áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra.

Ísey Skyr Bar laut í lægra haldi í deilu um uppskriftir og útlit umbúða og vara
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að útlit umbúða og vara Ísey Skyr Bar skorti nægilegt sérkenni til þess að fyrirtækið gæti notið einkaréttar á því.

Tappinn úr flöskunni og búbblurnar flæða um áramótin
Eitthvað virðist áhugi landsmanna á því að sötra áfenga drykki úr Vínbúðinni vera minni í ár en í fyrra ef marka má sölutölur. Salan í desember í ár er um tíu prósentum minni árið 2021 en var í desember í fyrra. Áhuginn í freyði- og kampavíni er þó meiri í ár ef eitthvað er.

Þristamúsin fræga innkölluð
Salathúsið ehf., framleiðandi þristamúsarinnar, sem kennd hefur verið við Simma Vill, hefur ákveðið að innkalla vöruna. Það er vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvalds en varan inniheldur gerlisneyddar eggjarauður.

Húsfélag fær 36 milljónir vegna galla
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Lundi 2-6 í Kópavogi 36 milljónir vegna galla í þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum.

MAST minnir landsmenn á hreinlæti, kælingu og rétta hitun matvæla um jólin
Matvælastofnun minnir landsmenn á að huga að hreinlæti, kælingu og réttri hitun matvæla um jólin til að koma í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.

Grípa ekki til aðgerða vegna deilna um „Zolo“
Neytendastofa sér ekki ástæðu til að grípa til aðgerða vegna deilna um notkun á auðmenninu og vörumerkinu ZOLO. Kvörtun hafði borist stofnuninni frá Zolo og dætrum ehf. þar sem kvartað var yfir notkun City Bikes ehf á merkinu Zolo á rafhlaupahjólum sínum.

Allt að 50 til 100 prósenta verðmunur á jólasteikinni
Mikill verðmunur er á jólasteikinni þetta árið og munur á hæsta og lægsta kílóverði hátíðarkjöts oft á milli 50 til 100 prósent.

Jóla-Tuborg í gleri innkallaður vegna glerbrots sem fannst
Ölgerðin hefur ákveðið að innkalla Tuborg Julebryg í 330 ml glerflöskum vegna tilkynningar um að glerbrot hafi fundist í slíkri flösku.

Hvítölið og hefðbundið Jólaöl og appelsín snúa aftur næstu jól
Nokkrar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar Ölgerðarinnar að hætta framleiðslu á Hvítöli en nú geta menn tekið gleði sína á ný þar sem fyrirtækið hefur ákveðið að bjóða bæði upp á Hvítöl og hefðbundið Jólaöl og appelsín á næsta ári.

Bjarni boðar nýtt álagningakerfi á græn ökutæki
Fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að innleiða nýtt álagningarkerfi fyrir bifreiðar sem ekki væru drifnar áfram af jarðefnaeldsneyti. Fyrstu skrefin verði vonandi stigin á næsta eða þarnæsta ári. Ríkissjóður geti ekki verið án tekna af umferðinni til að standa undir viðhaldi og uppbyggingu innviða hennar.

Framlengja opnunartímann í tveimur verslunum til viðbótar
Bónus hefur ákveðið að framlengja opnunartíma verslana sinna á Selfossi og Fitjum í Reykjanesbæ í takti við rýmri opnunartíma sjö verslana sem tilkynnt var um á dögunum.

Verðhækkanir hjá Domino's
Verðhækkanir tóku gildi hjá flatbökurisanum Domino‘s um síðustu mánaðamót. Forstjórinn segir að um sé að ræða viðbrögð við ýmsum hækkunum á hráefnisverði og mikið hafi verið lagt upp úr því að halda verðbreytingum í hófi.

Gagnrýnir tilboð TM: „Vátryggingar eru ekki skyndivara“
Neytendastofa er nú með til skoðunar nokkrar tilkynningar vegna tilboðs tryggingafélagsins TM síðastliðinn mánudag. Formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda segir tilboðið hafa verið á skjön við neytendalög og gagnrýnir tryggingarfélögin fyrir ofurhátt verðlag.

Matvælaöryggi ekki tryggt við ísframleiðslu hjá Ketó kompaníinu og Pizzunni
Ketókompaníið hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Ketóís frá Ketó Kompaníinu og ís frá Pizzunni. Matvælaöryggi viðkomandi vara var ekki tryggt á framleiðslustað.

Sætti sig ekki við fimmfalda ofrukkun og hafði betur
Viðskiptavinur ferjuflutningafélagsins Smyril Line hafði betur gegn fyrirtækinu eftir að hann sætti sig ekki við að þurfa að borga fimmtíu þúsund krónur vegna farmbréfs. Smyril Line þarf að endurgreiða manninum fjörutíu þúsund krónur.

Ýmislegt sem ber að varast á tilboðsdögum: „Hægt að gera góð kaup en ekki eru öll kaup góð“
Verslanir víða um land tóku þátt í Svörtum föstudegi í dag. Formaður Neytendasamtakanna og stofnandi Vakandi segja mikilvægt að fólk sé á varðbergi á tilboðsdögum sem þessum fyrir mögulegu svindli og sé meðvitað um neyslu sína.

Ný staðsetning Vínbúðarinnar í miðbæ vekur hörð viðbrögð
Búið er að velja nýja staðsetningu fyrir Vínbúðina í miðborg Reykjavíkur. Fiskislóð 10 eru eina staðsetningin sem kemur til greina miðað við auglýsingu.