Tónlist
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 226 ›
33 atriði staðfest Alls hafa 33 atriði verið staðfest á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði um páskana. „Við ætluðum að fækka atriðum í ár en þau voru öll svo geðveik sem sóttu um þannig að það var ekki hægt að segja nei,“ segir Mugison sem hefur skipulagt hátíðina undanfarin ár. „Við höfum fengið 80 til 90 umsóknir og þær eru ennþá að berast, þótt við séum eiginlega búin að fylla í öll „slott“. Tónlist 9.3.2007 10:00
Á leiðinni til Texas Hljómsveitirnar Lada Sport og Mammút munu spila á tónleikahátíðinni South by South West í Texas á næstunni. Til að hita upp fyrir ferðina og til að fá hjálp við fjármögnun ætla sveitirnar að halda tónleika á Grandrokki í kvöld. Tónlist 9.3.2007 09:45
Galdrakarlar, tröll og krakkar Á morgun kl. 15 er komið að árlegum fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói en þá verður lokið upp dyrum að ævintýralegum heimi trölla, galdrakarla og annarra kynjavera. Tónlist 9.3.2007 09:15
Gler- og ljósmyndir Drafnar Myndlistarkonan Dröfn Guðmundsdóttir opnar á morgun sýningu á glerverkum og ljósmyndainnsetningu í Grafíksafni Íslands – sal íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu, hafnarmegin. Tónlist 9.3.2007 09:00
Spila í Danmörku Hljómsveitin Nilfisk frá Stokkseyri er á leiðinni í afmælis- og tónleikaferð um Danmörk í apríl. Næstkomandi laugardag verða fjögur ár liðin síðan sveitin var formlega stofnuð og af því tilefni heldur hún tónleika á Draugabarnum á Stokkseyri í kvöld. Mun allur ágóðinn renna í reisuna til Danmerkur. Tónlist 9.3.2007 07:45
Tónleikar í Stokkhólmi Tónleikaferð bresku hljómsveitarinnar The Police um Evrópu hefst í Stokkhólmi 29. ágúst. Sveitin mun ferðast um Bretland, Tékkland, Austurríki, Holland, Þýskaland og Spán á tónleikaferð sinni, sem er sú fyrsta síðan hún lagði upp laupana fyrir 23 árum.Líklegt er að The Police spili einnig í Belgíu, Danmörku, Ítalíu og Sviss á tónleikaferðinni. Tónlist 9.3.2007 07:30
Undrablanda frá Japan Japanskar stelpur í indí-heiminum virðast bera með sér óendanlegan persónusjarma og hæfileika. Steinþór Helgi Arnsteinsson er að minnsta kosti agndofa. Tónlist 9.3.2007 07:15
Þórir ferðast um Ítalíu Tónlistarmaðurinn Þórir ætlar í tónleikaferð um Ítalíu í apríl. Þar mun hann spila einsamall á níu tónleikum á níu dögum. „Það verður mjög gaman enda hef ég aldrei komið til Ítalíu,“ segir Þórir, sem er að vinna að sinni þriðju plötu sem er væntanleg í sumar. „Þetta gengur hægt og bítandi,“ segir hann um plötuna, sem hann tekur upp sjálfur. Tónlist 9.3.2007 06:30
Allir í stuði á Evróputúr Hljómsveitin Benni Hemm Hemm er á tónleikaferðalagi um Evrópu sem stendur yfir til 15. mars. Sveitin hélt á dögunum tvenna tónleika í París og tvenna í Köln og Frankfurt við góðar undirtektir. Í fyrrakvöld spilaði hún síðan í St. Gallen í Sviss og í Vín í gærkvöldi. Tónlist 8.3.2007 09:30
Ágeng sveifla á Domo Hljómsveitin „Jónsson/Gröndal kvintett“ leikur í djasstónleikaröð Múlans á skemmtistaðnum Domo bar í Þingholtsstræti í kvöld. Tónlist 8.3.2007 09:15
Vill stjörnum prýtt blúsband Blúsarinn Halldór Bragason hefur í hyggju að stofna norræna blúshljómsveit sem myndi ferðast á milli tónlistarhátíða á Norðurlöndunum og jafnvel víðar um heim. Sveitin yrði ekki alltaf skipuð sama fólkinu heldur yrði meðlimum skipt út frá ári til árs. Tónlist 8.3.2007 07:45
Hljómfagur hvalreki Danski sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtsson heldur tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í kvöld ásamt píanóleikaranum Ninu Kavtaradze og Einari Jóhannessyni klarinettuleikara. Tónlist 7.3.2007 06:30
Incubus rokkaði í Höllinni Bandaríska hljómsveitin Incubus hélt vel heppnaða tónleika í Laugardalshöll síðastliðið laugardagskvöld. Spilaði sveitin öll sín bestu lög og náði upp góðri stemningu með blöndu sinni af hip-hopi, rokki og poppi. Rokkararnir í Mínus hituðu upp og spiluðu efni af væntanlegri plötu sinni við góðar undirtektir tónleikagesta. Tónlist 6.3.2007 00:01
Endurnýjun óperuforms Óperumiðillinn fær nú yfirhalningu í breska sjónvarpinu. Ætli íslenskir óperuunnendur geti lært eitthvað af þeirri frumlegu tilraun? Að undanförnu hefur verið deilt töluvert um óperur og áherslur á síðum íslenskra blaða en sitt sýnist hverjum um þau stykki sem færð eru á fjalir í Ingólfsstræti. Tónlist 5.3.2007 10:00
Grátur og gnístran tanna hjá Höllu og Einari í X-Factor „Ég var eitthvað viðkvæm fyrir og mátti eiginlega bara ekki við þessu,“ segir Halla Vilhjálmsdóttir, kynnirinn skeleggi í X-Factor, sem átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar Alan var rekin heim úr síðasta X-Factor þættinum á föstudaginn. Tónlist 5.3.2007 09:30
Gus Gus fagnar Gus Gus fagnaði útgáfu nýjustu plötu sinnar með teiti á Sirkus síðastliðið fimmtudagskvöld. Platan, sem ber nafnið Forever, er fimmta stúdíóplata sveitarinnar. Eiginlegir útgáfutónleikar verða haldnir á Nasa í lok mars, en það var enginn skortur á fólki sem vildi gleðjast með Gus Gus-flokknum á fimmtudagskvöldið. Tónlist 5.3.2007 09:00
Sameinaðir kraftar Tónlistarskólinn á Akureyri heldur dag tónlistarskólanna hátíðlegan og efnir til mikillar músíkveislu ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands um helgina. Tónlist 3.3.2007 15:30
Muse valin best á NME Rokksveitin Muse var valin besta breska sveitin á NME-tónlistarverðlaununum sem voru afhent á dögunum. The Arctic Monkeys hlaut tvenn verðlaun, þar á meðal fyrir bestu plötuna, Whatever People Say I Am, That"s What I"m Not. Tónlist 3.3.2007 15:00
Frjótt ímyndunarafl Simone Émilie Simon heldur tónleika í Háskólabíó annað kvöld í tengslum við frönsku menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi. Émilie nýtur mikilla vinsælda í Frakklandi. Tónlist 3.3.2007 10:00
Ekki bara Öxar við ána Skólahljómsveit Kópavogs er ein elsta og virtasta skólalúðrasveit landsins og fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Á morgun verða haldnir tónleikar í Háskólabíói þar sem félagar hennar fagna þessum tímamótum með óvenjulegri efnisskrá. Tónlist 3.3.2007 08:00
Íslenskur blús í Kína „Kínverjar hafa ekki kynnst blúsnum að ráði en eru þó hrifnir af honum, sérstaklega hér í Sjanghæ sem er hliðið að umheiminum í þessum efnum," segir tónlistarmaðurinn KK. Tónlist 3.3.2007 07:30
Elton John planar tónleikaferð Íslandsvinurinn Elton John fagnar bráðum sextugs afmæli sínu. Hann hefur verið með sýningu í Las Vegas en nú ætlar hann að fara með þá sýningu til fimm borga í Evrópu. Er þetta í tilefni þess að hann er búinn að skemmta í 40 ár og er að fylla 60 árin. Tónlist 2.3.2007 16:00
Baráttan harðnar Sjö keppendur eru eftir í X-Factor og enn kólnar sambandið á milli dómaranna. Tónlist 2.3.2007 09:00
Í aðra tónleikaferð Strákasveitin Take That ætlar í lok ársins í sína aðra tónleikaferð um Bretland síðan hún kom saman á nýjan leik á síðasta ári. Ferðin mun heita The Beautiful World Tour og munu þeir félagar meðal annars spila í London, Glasgow og í Manchester. Tónlist 2.3.2007 08:45
Náttúra og strengir Elísabet Waage hörpuleikari og Hannes Guðrúnarson gítarleikari halda tónleika í Salnum í Kópavogi á morgun. Tónlist 2.3.2007 07:30
Reykvél og ljósprik Stórt „90s“ partí verður haldið á Nasa annað kvöld. Uppselt var í síðasta partí, sem var haldið á gamlárskvöld, og ætlaði þakið hreinlega að rifna af húsinu. Tónlist 2.3.2007 07:15
Til heiðurs Tony Joe White Mugison, Baddi úr Jeff Who?, Jenni úr Brain Police og Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi söngvari Hjálma, eru á meðal þeirra sem munu syngja á nýrri plötu til heiðurs bandaríska blúsrokkaranum Tony Joe White. Tónlist 2.3.2007 06:45
Völuspá í útvarpi Í dag skulu menn leggja við hlustir - skeggöld, skálmöld, skildir eru klofnir. Vindöld, vargöld, áður veröld steypist. Hér mun enginn maður öðrum þyrma. Tónlist 2.3.2007 06:30
Vasahljómkviða frá Japan Smekkmennirnir og tilvonandi Íslandsvinirnir í frönsku hljómsveitinni Air senda frá sér nýja plötu eftir helgina. Pocket Symphony er þeirra fimmta plata. Trausti Júlíusson forvitnaðist um gerð hennar. Tónlist 2.3.2007 06:00
VAX á austurlandi Hljómsveitin VAX leggur land undir fót næstu helgi og ætlar að spila á Egilsstöðum föstudaginn 2. mars á Svarthvítu hetjunni og 3. mars á Kaffihorninu á Höfn í Hornafirði á Norðurljósablúshátíðinni. Tónlist 1.3.2007 16:45