Viðskipti erlent
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Nissan segir upp 20 þúsund manns Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur tilkynnt um að félagið hyggist segja upp 20 þúsund manns á næsta ári. Gripið er til þessa vegna vernsandi ástands í bílasölu um allan heim en um er að ræða 8,5 prósent af öllum starfsmönnum bílarisans. Forstjóri fyrirtækisins segir að bílaiðnaðurinn um allan heim sé í miklum vandræðum og að Nissan sé engin undantekning í því sambandi. Viðskipti erlent 9.2.2009 17:22
Kúafretir gætu kostað danska bændur milljónir kr. Fretir og ropar úr kúm og svínum gætu kostað danska bændur milljónir danskra króna á næstu árum verði tillögur skattanefndar Danmerkur um gjöld fyrir losun á metangasi út í andrúmsloftið að veruleika. Viðskipti erlent 9.2.2009 15:37
Reiknað með aukinni sölu á frystum fiski í Bretlandi Reiknað er með að sala á frosnum matvælum í Bretlandi muni nema ríflega 5 milljörðum punda á þessu ári, og mest verði aukningin í sölu á frystum sjávarafurðum. Viðskipti erlent 9.2.2009 13:26
Nissan segir upp 20 þúsund starfsmönnum Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur ákveðið að segja upp tuttugu þúsund manns vegna samdráttar í bílasölu. Þetta jafngildir 8,5 prósentum af öllu starfsfólki Nissan. Viðskipti erlent 9.2.2009 10:29
Kaupandi fundinn að Carnegie bankanum í Svíþjóð Samkvæmt frétt í Dagens Nyheder er búið að finna kaupenda að Carnegie bankanum sænska og að tilkynnt verði um kaupin seinna í dag. Milestone átti 10% í bankanum þegar sænska ríkið þjóðnýtti hann fyrr í vetur. Viðskipti erlent 9.2.2009 08:58
Segir Íslendinga vera hina nýju Pólverja Ásókn Íslendinga í störf í Noregi hefur margfaldast að undanförnu og í frétt um málið í blaðinu Aftenposten eru Íslendingar sagðir vera hinir nýju Pólverjar þar í landi. Viðskipti erlent 9.2.2009 08:46
Nikkei-vísitalan lækkaði um tæpt prósent Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan lækkaði um tæpt prósent í morgun en jenið, gjaldmiðill Japans, styrktist hins vegar töluvert og hefur ekki haft jafnsterka stöðu gagnvart bandaríkjadollar í meira en þrjár vikur. Talið er að japanskir útflytjendur kaupi nú jen í miklum mæli til að reyna að styrkja gjaldmiðilinn. Í Hong Kong hækkuðu hlutabréf í viðskiptum dagsins og þokaðist Hang Seng-vísitalan upp á við um tæpt prósent. Viðskipti erlent 9.2.2009 07:26
Blankir Baugsmenn þurftu að selja þyrlu til forstjóra Iceland Fjárhagsstaða Baugs var svo bág í lok síðasta árs að félagið neyddist til að selja þyrlu í eigu þess til Malcolm Walker, forstjóra Iceland, fyrir tvær milljónir punda eða um 340 milljónir króna. Viðskipti erlent 8.2.2009 10:23
Kaupþing ætlar að endurskipuleggja Mosaic Kaupþing hefur tekið yfir 49% hlut Baugs í tískuvörukeðjunni Mosaic Fashion og hyggst bankinn endurskipuleggja reksturinn að sögn The Sunday Times. Skuldir Baugs við Kaupþing nema 450 milljónum punda eða um 76 milljörðum samkvæmt blaðinu. Viðskipti erlent 8.2.2009 10:16
Þingnefnd rannsakar innlán sveitarfélaga á reikninga bankanna Nefnd á vegum breska þingsins rannsakar nú þá ákvörðun margra sveitastjórna í Bretlandi að leggja sparifé inn á reikninga íslensku bankanna, en féð var fryst þegar bankarnir hrundu í október. Richard Kemp borgarfulltrúi í Liverpool borg hefur fullyrt fyrir nefndinni að viðræður við skilanefndir bankanna gæfu ástæðu til þess að vonast til að féð fengist greitt. Viðskipti erlent 8.2.2009 09:46
Kanna áhættustjórnun bankastjórna Bresk yfirvöld hyggjast rannsaka bónusgreiðslur til æðstu stjórnenda í bönkum þar og tengsl launabónusa við áhættusækni. Þetta hefur Sunday Telegraph eftir Alistair Darling fjármálaráðherra. Viðskipti erlent 7.2.2009 22:58
Atvinnuleysið 7,6% í Bandaríkjunum Atvinnuleysi jókst meira í Bandaríkjunum í síðasta mánuði en nokkru sinni síðan árið 1974, segir á vef breska blaðsins Times. Viðskipti erlent 7.2.2009 12:18
Íbúar í Huddersfield fá enn ekkert út úr Icesave Útsvarsgreiðendur í Huddersfield í Bretlandi bíða enn eftir því að fá greidda peninga út úr Icesave reikningum Landsbanka Íslands. Viðskipti erlent 7.2.2009 11:05
FIH bankinn þarf að afskrifa 10 milljarða kr. FIH bankinn danski, sem nú er í eigu íslenska ríkisins þarf að afskrifa um hálfan milljarð danskra kr. eða tæplega 10 milljarða kr. eftir árið í fyrra. Bankinn mun samt skila hagnaði eftir árið. Viðskipti erlent 6.2.2009 16:04
Verð á gulli rýfur brátt 1.000 dollara múrinn Heimsmarkaðsverð á gulli mun brátt fara yfir 1.000 dollara á únsuna og stefnir jafnvel í að setja nýtt met. Fjárfestar standa nú í röðum eftir að kaupa gull sökum þeirrar óvissu sem ríkir nú á fjármálamörkuðum heimsins. Viðskipti erlent 6.2.2009 15:09
Greiðslustöðvun BG Holding samþykkt í London Dómstóll í London hefur fallist á beiðni skilanefndar Landsbankans um greiðslustöðvun hjá BG Holding félagi Baugs í London. Jafnframt hefur PriceWaterhouseCoopers verið skipað sem stjórnendur félagsins meðan á greiðslustöðvuninni stendur. Viðskipti erlent 6.2.2009 12:10
Volvo blæðir út í fjármálakreppunni Bílaframleiðandinn Volvo í Svíþjóð skilaði tapi upp á 2,5 milljarða sænskr kr. eða um 35 milljörðum kr. á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Greinendur höfðu hinsvegar spáð tapi upp á þriðjung af þeirri upphæð eða 807 milljónir sænskra kr.. Viðskipti erlent 6.2.2009 11:11
Danske Bank kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp Stærsti banki Danmerkur, Danske Bank, er nú kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Og Peter Straarup bankastjóri bankans aðvarar hlutahafa um að ástandið muni versna á þessu ári. Viðskipti erlent 6.2.2009 09:44
Toyota spáir miklu tapi Japanski bílaframleiðandinn Toyota gerir ráð fyrir að tapa 450 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 560 milljarða króna, vegna samdráttar á bílamarkaði á síðasta ári. Þetta er þrisvar sinnum meira en fyrri spá bílaframleiðandans hljóðaði upp á. Viðskipti erlent 6.2.2009 09:22
Skilanefnd Landsbankans svínaði fyrir konungsfjölskyldu Saudi Arabíu Með því að ganga að veðunum í BG Holding í Bretlandi kom skilanefnd Landsbankans í veg fyrir að nokkrir meðlimir konungsfjölskyldunnar í Saudi Arabíu fjárfestu í Hamleys leikfangaverslununum. Viðskipti erlent 6.2.2009 09:02
Hækkun í Asíu Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun, einkum bréf banka og hátæknifyrirtækja. Aukinnar bjartsýni gætir nú hjá fjárfestum vegna björgunaraðgerða ríkisstjórna og hækkuðu bréf Lenovo-tölvuframleiðandans í Hong Kong um 10 prósent eftir að skipt var um stjórn hjá fyrirtækinu. Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan þokaðist upp um eitt og hálft prósent. Viðskipti erlent 6.2.2009 07:30
Samvinna er forsenda hagvaxtar Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Timothy Geithner, sagði í dag að það væri mjög mikilvægt fyrir Bandaríkin að vinna með öðrum ríkjum að því að auka hagvöxt í heiminum. Viðskipti erlent 5.2.2009 21:50
Eignir Baugs nema um þriðjungi af skuldum félagsins Blaðið Telegraph hefur eftir heimildarmönnum sínum að eignir Baugs í Bretlandi nemi í besta falli um þriðjungi af skuldum félagsins. Eignirnar eru metnar á um 400 milljónir punda en skuldir Baugs við íslensku bankanna nemi um 1,3 milljarði punda eða um 200 milljörðum kr.. Viðskipti erlent 5.2.2009 13:07
Stýrivextir í Bretlandi aldrei lægri Englandsbanki lækkaði stýrivextir um 50 punkta í dag og fara þeir við það úr 1,5 prósentum í eitt prósent. Þeir hafa aldrei verið lægri. Viðskipti erlent 5.2.2009 12:56
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 2,0 prósentum. Þetta er í samræmi við væntingar en bankinn hefur lækkað vextina hratt síðastliðna fjóra mánuði. Viðskipti erlent 5.2.2009 12:49
Landsbankamenn boðaðir á fund í breska fjármálaráðuneytinu Forráðamenn skilanefndar Landsbankans hafa verið boðaðir á fund í breska fjármálaráðuneytinu í dag en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, er nú staddur í London. Viðskipti erlent 5.2.2009 11:04
Lögsókn hafin gegn gamla Glitni í Noregi Fjórir af fyrrum viðskiptavinum Glitnis í Noregi, sem nú heitir BNbank, telja sig hlunnfarna af bankanum og ætla í mál gegn honum. Viðskipti erlent 5.2.2009 09:52
Bresk stjórnvöld æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans Bresk stjórnvöld munu vera æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans sökum áforma þeirra um að setja Baug í greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í grein sem viðskiptafréttastjóri blaðsins The Times skrifar í dag. Viðskipti erlent 5.2.2009 09:18
Baugur og Straumur leita að kaupanda að Magasin du Nord Carsten Fensholt fjármálastjóri Magasin du Nord í Kaupmannahöfn segir að greiðslustöðvun Baugs hafi ekki bein áhrif á rekstur verslunarinnar. Hinsvegar leiti Baugur í samvinnu við Straum nú ákaft að kaupenda að versluninni. Viðskipti erlent 4.2.2009 10:49
Mikil óvissa um eignir Baugs í Bretlandi og Danmörku Beiðni Baugs um greiðslustöðvun hefur vakið mikla athygli í breskum og dönskum fjölmiðlum og greina helstu blöð þessara landa frá málinu á vefsíðum sínum. Þar er m.a. tekið fram að mikil óvssa ríki nú um eignir Baugs í þessum löndum. Viðskipti erlent 4.2.2009 10:06