Viðskipti
202 203 204 205 206 207 208 209 210 … 334 ›
Eldsneytisverð muni sveiflast mikið á næstu vikum Framkvæmdastjóri N1 telur líklegt að miklar sveiflur verði í eldsneytisverði á næstu dögum og vikum. Bensínverð fór yfir 300 krónur á lítrann í dag hjá flestum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu. Neytendur 9.3.2022 18:01
Telur ummæli um virkjanaþörf óábyrg Þingmaður Pírata segir ummæli formanns starfshóps sem vann skýrslu um orkumál óábyrg en hann sagði að ef við ætlum að tvöfalda raforkuframleiðslu Íslands þurfi að reisa eina 100 megawatta virkjun á ári fram til ársins 2040. Þingmaðurinn segir vel hægt að ná markmiðum um orkuskipti án virkjana. Viðskipti innlent 9.3.2022 12:43
300 króna múrinn rofinn á höfuðborgarsvæðinu og víðar N1 hefur hækkað verð á bensínlítranum um sex krónur og er verðið nú komið í 303,90 krónur á flestum stöðvum félagsins á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu. Dísillítrinn kostar nú víðast 300,90 krónur hjá N1 og hefur hækkað um heilar tíu krónur milli daga. Neytendur 9.3.2022 10:14
Auka aftur réttindi sjóðfélaga og heimila lífeyristöku frá 60 ára aldri Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur aukið réttindi sjóðfélaga vegna sterkrar stöðu sjóðsins í annað sinn á innan við hálfu ári. Réttindi verða aukin til viðbótar þeirri 10% hækkun sem varð í nóvember 2021 og hækka lífeyrisgreiðslur um liðlega 7%. Viðskipti innlent 9.3.2022 10:12
Bensínlítrinn kominn yfir 300 krónur á einni bensínstöð Olís Bensínlítrinn kostar nú 302,80 krónur bensínstöð Olís í Hrauneyjum. Bensínverð hefur hækkað umtalsvert síðustu vikurnar, ekki síst í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og hækkandi heimsmarkaðsverðs. Neytendur 9.3.2022 08:48
Sex milljóna króna hækkun á innan við viku Ásett verð þriggja herbergja blokkaríbúðar í Kópavogi hækkaði um sex milljónir króna á fimm daga tímabili. Fasteignasali segir að aðstæður hafi breyst hjá seljenda sem vilji reyna fá hærra verð fyrir eignina. Viðskipti innlent 9.3.2022 07:00
„Heilsukvíði hrjáir um 4% fólks og er jafnalgengur meðal karla og kvenna“ Heilsukvíði er flókið fyrirbæri sem getur haft veruleg áhrif á líf og störf fólks. Atvinnulíf 9.3.2022 07:00
„Þetta kallar á allavegana eina 100 megawatta virkjun á hverju ári“ Þörf er á aukinni orkuframleiðslu til að anna orkuskiptum á komandi áratugum. Formaður starfshóps sem vann skýrslu um orkumál segir að tvöföldun á raforkuframleiðslu Íslands kalli á eina 100 megawatta virkjun á ári fram til ársins 2040. Viðskipti innlent 8.3.2022 22:32
LME lokar fyrir viðskipti með nikkel eftir 177 prósenta verðhækkun London Metal Exchange (LME) lokaði í dag fyrir viðskipti með nikkel og gerir ráð fyrir áframhaldandi lokun næstu daga. Í tilkynningu segja forsvarsmenn LME um að ræða fordæmalausar aðstæður. Viðskipti erlent 8.3.2022 19:36
Laun forstjóra OR hækkuðu um sjö milljónir króna á síðasta ári Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er nú með 3,339 milljónir á mánuði í laun. Viðskipti innlent 8.3.2022 15:36
Tólf milljarða hagnaður af rekstri OR á síðasta ári Tólf milljarða króna hagnaður varð af rekstri Orkuveiru Reykjavíkur á síðasta ári. Ársreikningur samstæðunnar var samþykktur af stjórn í dag og er lagt til við aðalfund að greiddur verði arður til eigenda – það er Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – sem nemi fjórum milljörðum króna. Viðskipti innlent 8.3.2022 14:55
Google kaupir netöryggisfyrirtæki fyrir 5,4 milljarða dala Tækni- og netrisinn Google hyggst kaupa netöryggisfyrirtækið Mandiant fyrir um 5,4 milljarða Bandaríkjadala, rúmlega 720 milljarða króna. Með kaupunum stefnir Google að því að tryggja betur gögn viðskiptavina sinna í skýinu. Viðskipti erlent 8.3.2022 14:25
Rússneskum karfaveiðiskipum meinað að koma til landsins Rússneskum karfaveiðiskipum verður ekki lengur heimilt að koma til Íslands eftir að íslensk stjórnvöld tóku ákvörðun um að afturkalla undanþágu sem verið hefur í gildi frá aldamótum. Viðskipti innlent 8.3.2022 13:17
Heimsmarkaðsverð á áli orðið ævintýralega hátt Heimsmarkaðsverð á áli fór í gær í 3.850 dollara tonnið. Þetta er langhæsta álverð sögunnar. Álmarkaðir hafa heldur róast framan af degi og verðið sigið niður, fór niður í 3.740 dollara í morgun og var komið niður undir 3.500 dollara um hádegisbil. Viðskipti innlent 8.3.2022 12:24
Tugmilljóna mál þrotabús Pressunnar gegn ríkinu fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur veitt þrotabúi Pressunnar ehf. leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar þar sem íslenska ríkið var sýknað af tugmilljóna kröfu þrotabúsins. Viðskipti innlent 8.3.2022 12:17
Ráðin til sjóbaða Skúla í Hvammsvík Hilmar Þór Bergmann, Fríða Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir og Guðmundur Guðjónsson hafa öll verið ráðin til starfa til að vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu í Hvammsvík í Hvalfirði. Viðskipti innlent 8.3.2022 09:11
Segir Bolungarvíkurgöng hafa bjargað Bjarnabúð Margir spáðu því að Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins, myndi lognast út af með Bolungarvíkurgöngum þegar auðveldara varð fyrir Bolvíkinga að skreppa í búðir á Ísafirði. Reynsla kaupmannsins varð þveröfug; Ísfirðingar fóru að versla í Bolungarvík. Viðskipti innlent 7.3.2022 21:41
Olíuverð komið langt yfir afkomuspá Verð á þotueldsneyti er komið yfir það sem forsvarsmenn Icelandair gerðu ráð fyrir í afkomuspá. Þá verður félagið varnarlaust gagnvart sveiflum á eldsneytisverði þann 1. júlí. Viðskipti innlent 7.3.2022 20:59
„Mér þykir Íslendingar full fljótir að fara í kjarnorkubyrgin“ Rauður dagur var í kauphöllinni í dag. Hagfræðingur segir sérstakt að hækkandi olíuverð hafi meiri áhrif hér á landi en í löndum sem eru háð olíu Rússa og telur Íslendinga full fljóta í kjarnorkubyrgin. Viðskipti innlent 7.3.2022 20:00
Breytingar gerðar á framkvæmdastjórn Marel Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Marel, sem taka gildi frá og með deginum í dag. Fram kemur í tilkynningu frá Marel að markmið breytinganna sé að skerpa á skilvirkni í rekstri, stjórnun lykilfjárfestinga til að auka hraða og sveigjanleika og styðja við vaxtarmarkmið. Viðskipti innlent 7.3.2022 17:43
Lóa Björk um borð í Lestina Lóa Björk Björnsdóttir hefur verið ráðin í dagskrárgerð og menningarumfjöllun á Rás 1. Hún mun stýra Lestinni með Krisjáni Guðjónssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV. Viðskipti innlent 7.3.2022 16:40
Sætanýting hjá Play jókst milli mánaða Flugfélagið Play flutti 19.686 farþega nýliðnum febrúarmánuði og var sætanýting 67,1 prósent, samanborið við 55,7 prósent í janúar. Viðskipti innlent 7.3.2022 13:53
Flugfélögin leiða lækkanir á eldrauðum markaði Það hefur verið rautt að litast um í kauphöllinni í morgun. Flugfélögin tvö, Icelandair og Play hafa lækkað mest. Viðskipti innlent 7.3.2022 10:21
Innrásin muni hafa hamfarakennd áhrif á framboð og verð matvæla Innrás Rússlands í Úkraínu mun hafa hamfarakennd áhrif á framboð og verð matvæla á heimsvísu að mati framkvæmdastjóra eins stærsta áburðarframleiðanda heimsins. Viðskipti erlent 7.3.2022 09:00
Olíurisi gagnrýndur fyrir að kaupa mikið magn rússneskrar hráolíu Olíurisinn Shell hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að kaupa mikið magn hráolíu frá Rússlandi á föstudaginn var. Olíuverð í heiminum hefur ekki verið hærra í mörg ár vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 7.3.2022 07:36
Uppátækjasamur skólameistari sem áður starfaði á sjónum, í fréttum og í fjölmiðlum Magnús Ingvason skólameistari Fjölbrautaskólans í Ármúla (FÁ) er feginn að grímuskyldan er ekki lengur. Atvinnulíf 7.3.2022 07:00
Brottrekstur Rússa úr heimshagkerfinu hafi gríðarleg áhrif Seðlabankastjóri gerir ráð fyrir að stríðið í Úkraínu mun hafa mjög mikil áhrif á hagkerfið hér á landi og víða um heim. Skammtímaáhrif séu strax komin í ljós. Hins vegar sé Rússland fremur fátækt land sem hafi ekki efni á langvarandi hernaði. Viðskipti erlent 6.3.2022 15:06
Trúir því að einn daginn sigri B-týpurnar A-týpurnar Andrea Gunnarsdóttir er Data Engineer hjá fyrirtækinu Controlant og formaður Ungra athafnakvenna (UAK). Atvinnulíf 5.3.2022 10:01
Hættir sem framkvæmdastjóri hjá Play og einbeitir sér að fluginu Guðni Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play. Guðni tekur við sem framkvæmdastjóri af Arnari Má Magnússyni, einum af stofnendum Play. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 4.3.2022 16:14
Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir Costco á Íslandi þarf að greiða Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ) 2,8 milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vangoldinna félagsgjalda. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem kveðin var upp í dag. Viðskipti innlent 4.3.2022 15:53