Erlent

Vantrauststillaga felld

Vantrauststillaga gegn efnahagsstefnu Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, var felld í dag á ísraelska þinginu. 55 greiddu atkvæði með tillögunni og jafnmargir voru á móti henni. Samkvæmt reglum þingsins þar sem 120 menn eiga sæti hefði meirihluti sitjandi þingmanna, eða 61 talsins, þurft að vera fylgjandi tillögunni svo hún yrði samþykkt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×