Innlent

Fjölmiðlamálið reynir á Framsókn

Forysta Framsóknarflokksins segir að fjölmiðlamálið reyni á flokkinn. Hún gefur ekki mikið fyrir gagnrýni oddvita flokksins í Reykjavíkurlistanum og formaður flokksins segir honum frjálst eins og öðrum að gagnrýna flokkinn. Slíkt sé þó ekki endilega vísbending um að eitthvað sé að í flokknum. Þingflokkur Framsóknar fundaði í dag í skugga skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem staðsetur flokkinn sem minnsta flokk landsins. Í kjölfar hennar gagnrýndi Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn, forystu flokksins sem hann segir fylgja Sjálfstæðisflokknum í blindni og hlusti ekki á almenna flokksmenn Framsóknar. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir málfrelsi vera í flokknum og að forystan sé ekki alltaf ánægð með gagnrýni en hún verði að sjálfsögðu að þola hana. Halldór segir niðurstöðu skoðanakönnunarinnar og gagnrýni innan flokksins ekki endilega vera vísbendingu um að eitthvað sé bogið í flokknum.Hann segir neikvæða umræðu hafa t.d. verið um álverið á Reyðarfirði fyrir nokkrum árum en reyndin sé önnur núna. Hafi flokkurinn látið stjórnast af skoðanakönnunum á sínum tíma hefði ekki neitt orðið úr neinu í því máli. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir það vekja athygli að á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins á dögunum, þar sem hafi ríkt mikil eindrægni og einlægni, hafi Alfreð Þorsteinsson setið en ekki tekið til máls. Hann segir málið hins vegar reyna á flokkinn. Fleiri þingmenn Framsóknar bentu fréttamanni á þögn Alfreðs á miðstjórnarfundinum. Einn kom honum þó til varnar og sagði þögn Alfreðs þar hafa verið afar eðlilega. Á þeim tímapunkti hafi bæði formaður flokksins og varaformaður verið búnir að lýsa því yfir að málið yrði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þær raddir heyrast nú innan þingflokksins að mikill titringur sé í þeirra röðum vegna útreiðarinnar í skoðanakönnun helgarinnar og gagnrýni Alfreðs Þorsteinssonar og að á næstu dögum komi í ljós hvort gagnrýni fleiri áhrifamanna hafi áhrif á framvindu og örlög fjölmiðlafrumvarpsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×