Erlent

Kerry með naumt forskot

John Kerry hefur naumt forskot á George Bush í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum, ef marka má skoðanakönnun Gallups fyrir CNN-sjónvarpsstöðina. Samkvæmt henni styðja 50% kjósenda demókratana Kerry og Edwards en 46% ætla að kjósa Bush og Cheney. Könnunin var gerð um helgina eða eftir að Kerry valdi John Edwards sem varaforsetaefni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×