Í léttum lautartúrum í sumar 16. júlí 2004 00:01
Svali, jeppatöffari og útvarpsmaður, á Fm 95,7 er jeppalaus maður um þessar mundir og hálfónýtur að eigin sögn. "Ég þurfti að selja jeppann af því að ég er að kaupa mér íbúð og keypti mér Toyota Avensis til að lulla á malbikinu fram á næsta vor. Þá verður náttúrlega fjárfest í nýjum jeppa. Þetta verða bara lautartúrar það sem eftir lifir sumars," segir Svali hálfsvekktur. Hann er samt harðánægður með Avensisinn og segir hann þrumugóð kaup. "Þetta er svona einn með öllu og ég er vel sáttur." Svali segist ekki vera græjukarl í þeirri merkingu að hann sé með steríógræjur í bílnum, en talstöðvar, loftnet og pumpur eru hins vegar hans deild. "Ég er ekki einn af þeim sem gef í með græjurnar í botni, og þegar ég er uppi á fjöllum að þrælast í gegnum snjóskafla og torfærur hlusta ég ekki á tónlist. Á fjallstoppunum hlustar maður bara á þögnina." Draumabíll Svala er Land Crusier 100-bíll og hann er nú þegar farin að leggja fyrir svo næsta sumar endi ekki í tómum Heiðmerkurtúrum. Þetta snýst bara um að þrauka og ég geri mitt besta. Meiru get ég ekki lofað."
Tilveran Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Atli Örvarsson tilnefndur til Emmy-verðlauna Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira