Ísraelsmenn treysta ekki ESB 22. júlí 2004 00:01
Ísraelsmenn segjast ekki geta treyst Evrópusambandinu í friðarferlinu í Miðausturlöndum eftir að sambandið studdi ályktun gegn Ísrael á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Ísrael funduðu með Javier Solana, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, í morgun. Ísraelsmenn eru æfir út í Evrópusambandið fyrir að styðja við ályktun sem samþykkt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í fyrradag sem segir að Ísraelsmenn skuli rífa niður öryggismúrinn sem ísraelski herinn hefur verið að byggja á Vesturbakkanum. Ísraelski utanríkisráðherrann, Silvan Shalom, sagði við sendinefnd fá Evrópusambandinu í morgun að hann væri ekki viss um að hann gæti treyst Evrópusambandinu lengur í tengslum við friðarferlið í Miðausturlöndum. Eftir fundinn var haldinn blaðamannafundur og þar var erfitt að fela þá miklu gjá sem myndast hefur milli Evrópu og Ísraels eftir kosninguna hjá Sameinuðu þjóðunum. Utanríkisráðherra Ísraels sagði að Evrópa hefði látið Palestínumenn ráðskast með sig og að Ísrael hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum með Evrópusambandið. Hann sagði ennfremur að hann vissi að öll Evrópuríkin væru ekki á móti Ísrael. Javier Solana brást mjög illa við þessum orðum og undirstrikaði að ekkert evrópuríki væri á móti Ísrael heldur hefðu menn álitið sem svo að lega múrsins væri röng samkvæmt niðurstöðum alþjóðadómstóla. Javier Solana vék sér síðar að Jasser Arafat, forseta Palestínu og sagði að Evrópusambandið þyrfti að endurskoða stuðning sinn við forsetann. Hálfgerð stjórnarkreppa er í Palestínu um þessar mundir því enn er óljóst hvort forsætisráðherrann, Ahmed Qurie, haldi áfram störfum. Qurie vill að Arafat gefi eftir völd sín yfir palestínska hernum en Arafat hefur þvertekið fyrir það.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Erlent Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Fleiri fréttir Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Sjá meira