Erlent

Flokksþing demókrata að hefjast

Flokksþing Demókrataflokksins hefst með pompi og prakt í Boston á morgun. Á þinginu koma saman, auk demókrata, fimmtán þúsund fréttamenn hvaðanæva úr heiminum, m.a. frá Stöð 2. Öflug öryggisgæsla er á staðnum enda hefur verið varað við hryðjuverkum í tengslum við forsetakosningarnar í haust. Á fimmtudaginn tekur John Kerry síðan með formlegum hætti við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×