Stjórnarkreppu í Palestínu lokið 27. júlí 2004 00:01
Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, dró afsögn sína til baka í dag. Þar með líkur tveggja vikna stjórnarkreppu í Palestínu. Qureia sagði af sér í kjölfar þess að Jasser Arafat skipaði frænda sinn sem yfirmann öryggissveita landsins. Arafat neyddist til að draga stöðuveitinguna til baka vegna mikilla mótmæla. Qureia dró síðar afsögn sína til baka tímabundið þegar Arafat neitaði að taka við henni. Síðan þá hefur ríkt hálfgerð stjórnarkreppa í Palestínu eða þangað til Arafat og Qureia funduðu í morgun. Queria sagði þá hafa rætt öll málefnin á opinskáan og yfirgripsmikinn hátt. „Ég vona að þetta sé skref í átt til umbóta og að lögmætisreglan muni gilda í öllu landinu,“ sagði forsætisráðherrann. Arafat sagðist mjög stoltur af fundinum Fréttaskýrendur telja margir að Arafat hafi látið í minni pokann en hann nær þó að halda yfirráðum yfir öryggissveitum landsins. Arafat hefur hins vegar þurft að samþykkja lög sem kveða á um að ríkissaksóknari skuli rannsaka spillta stjórnmálamenn á heimastjórnarsvæðunum. Þetta þykir visst áfall fyrir Arafat.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Innlent Fleiri fréttir Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Sjá meira