Menning

Önnur kynslóð Toyota RAV4

Nú þegar 10 ár eru liðin síðan Toyota kom fram með RAV4-jepplinginn eru menn farnir að bíða spenntir eftir nýrri útgáfu. Fyrirtækið hefur látið uppi að árið 2006 komi ný og endurbætt gerð af þessum vinsæla jepplingi með töluverðum breytingum. Línurnar hafa allar verið mýktar og framhluti bílsins og grillið tekur stakkaskiptum. Búnaður bílsins mun einnig taka miklum breytingum. RAV4 er minni en flestir samkeppnisjepplingar en það hefur aldrei komið niður á sölu hans. Nú eru hins vegar Hyundai Tucson og Kia Sportage komnir fram með nýja bíla með nýja eiginleika og má sem dæmi nefna að Tucson-bílinn fæst með V6 vél og því hafa Toyota-menn brugðið á það ráð að bjóða RAV4 með V6 bensínvél í Bandaríkjunum. Harðnandi samkeppni á jepplingamarkaðinum blasir nú við enda vill enginn bílaframleiðandi sitja hjá þar sem eftirspurn eftir jepplingum eykst stöðugt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.