Innlent

Þórólfur segir af sér

Þórólfur Árnason tilkynnti síðdegis í gær á blaðamannafundi í Höfða að hann hygðist segja af sér embætti borgarstjóra. "Það er sameiginleg niðurstaða mín og borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans að ég láti af störfum borgarstjóra hinn 30. nóvember næstkomandi. Ég er sannfærður um að það er rétt ákvörðun og ég óska Reykjavíkurlistanum og borgarbúum alls hins besta á komandi tímum."

Þórólfur hefur verið borgarstjóri í tæp tvö ár. Staða hans hefur verið í uppnámi frá því í byrjun síðustu viku þegar Vinstri-grænir sögðust ekki geta treyst honum fyllilega vegna þáttar hans í samráði Olíufélaganna eftir að lokaskýrsla Samkeppnisstofnunar kom út. Samþykkt var að gefa Þórólfi ráðrúm til að skýra mál sitt.

Þórólfur sagðist hafa tekið ákvörðunina eftir að hafa fengið tækifæri undanfarna daga til að "verja heiður sinn". Hann hafi frá upphafi komið hreint fram varðandi starf sitt fyrir Olíufélagið h.f. "Ég tel ekkert nýtt hafa komið fram sem breytir mati á mínum hlut eða ábyrgð frá því frumskýrsla Samkeppnisstofnunar komst í hámæli fyrir rúmu ári. Málið er hins vegar allt meira að vöxtum en nokkurn hefði órað fyrir."

Þórólfur minnir á að það hafi borið að með skjótum hætti að hann settist í borgarstjórastólinn:" Ástæðan fyrir því að ég tók það að mér var sú að mér þótti vænt um Reykjavíkurlistann og það sem hann stendur fyrir. Ég stend upp úr stóli borgarstjóra af sömu ástæðum og ég settist í hann" sagði Þórólfur á blaðamannafundinum í gær.

Reykjavíkurlistinn sagði í yfirlýsingu í gærkvöld að Þórólfur hafi reynst farsæll í störfum sem borgarstjóri: "Í ákvörðun Þórólfs felst að hann tekur hagsmuni borgarinnar og Reykjavíkurlistasamstarfsins fram yfir sína eigin."

R-listinn hefur ekki valið arftaka Þórólfs og virðist stefna í hörð átök innan hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×