Innlent

Borgarstjóraefni árið 2006?

Það skýrist ekki fyrr en þegar líða tekur á næsta ár hvort Steinunn Valdís Óskarsdóttir, verðandi borgarstjóri, verður borgarstjóraefni R-listans í næstu borgarstjórnarkosningum árið 2006. Þetta sagði Alfreð Þorsteinsson, oddviti framsóknarmanna í R-listanum, í viðtali við fréttastofuna í morgun.

Alfreð segir að það verði ekki fyrr en líða taki á næsta ár sem línur fari að skýrast hvort flokkarnir þrír, Framsóknarflokkur, Samfylking og Vinstri - grænir, muni á ný bjóða fram saman í nafni R-listans. Verði það hins vegar niðurstaðan hljóti Steinunn Valdís að koma til greina sem borgarstjóraefni, sagði Alfreð, en vildi að svo stöddu ekki tjá sig nánar um framtíð R-listans.

Innan Framsóknarflokksins á landsvísu hefur það sjónarmið verið viðrað að það geti verið rétt fyrir flokkinn að draga sig út úr R-lista samstarfinu fyrir næstu kosningar þar sem listinn sé ekki lengur á því flugi sem þarf til að tryggja sér stjórn borgarinnar. Með því að bjóða fram sér gætu fulltrúar hans náð sterkri stöðu við myndun nýs meirihluta, en gæti annars endað í hópi fallista.

Sjálfstæðsimenn sem fréttastofan hefur rætt við í morgun fara hins vegar ekki dult með að þeir telja vænlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að það skuli vera Steinunn Valdís sem leiði R-listannn fram að kosningum, en ekki Þórólfur Árnason. Máli sínu til stuðnings segja þeir að á vissum sviðum sé Steinunn Valdís ekki í takt við nútímakröfur almennings, til dæmis um samgöngumannvirki, og rifja upp ummæli hennar í borgarstjórn þann 21. september síðastliðinn þegar verið var að ræða mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Þar sagðist Steinunn Valdís telja að mislæg gatnamót á þessum stað ættu alls ekki rétt á sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×