Innlent

Þrjár bílveltur í mikilli hálku

Þrjár bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gærmorgun. Bílaleigujeppi með þremur Japönum valt á Suðurlandsvegi vestan Biskupstungnabrautar en enginn meiddist. Þá valt bílaleigubíll með tveimur útlendingum á Biskupstungnabraut ofan við Þrastarlund laust fyrir hádegið og urðu minniháttar meiðsl á fólki. Þá missti ökumaður stjórn á bifreið sinni í Kömbunum en meiddist lítið. Allar bílvelturnar urðu vegna ísingar og hálku, en á svæðinu var rigning og þíða sem breyttist strax í krapa og ísingu á veginum. Bílarnir eru allir illa skemmdir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×