Innlent

Hraðakstur á Ólafsfirði

Tíu ökumenn voru stöðvaðir í Ólafsfjarðargöngum á laugardag fyrir hraðakstur, við sameiginlegt umferðareftirlit lögreglu á Ólafsfirði og í Dalvík. Hámarkshraðinn í göngunum er 50 kílómetrar á klukkustund en tveir ökumenn voru á yfir 100 kílómetra hraða. Þeir eiga báðir yfir höfði sér 50.000 króna sekt og mánaðar ökuleyfissviptingu. Aðfaranótt sunnudags óku svo fimm ökumenn til viðbótar óþarflega hratt á Ólafsfjarðarvegi og voru þeir áminntir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×