Innlent

Þriggja bíla árekstur

Harður þriggja bíla árekstur varð við Lyngholt á milli Akranes og Borgarnes um klukkan sex í gær. Á meðan lögregla var á vettvangi fóru tveir bílar, sem komu að, út af og þurfti að flytja einn farþeganna á sjúkrahúsið á Akranesi. Árekstur bílanna þriggja var þegar ökumaður bíls, sem kom að norðan, missti stjórn á bílnum þannig að hann lenti þvert á veginum og fyrir bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Sá kastaðist síðan á þriðja bílinn. Minniháttar meiðsl urðu í árekstrinum en tveir bílanna eru gjörónýtír



Fleiri fréttir

Sjá meira


×