Menning

Fegurðardrottning fær jólabarn

"Ég er nokkuð viss um að það sé önnur stelpa á leiðinni," segir Íris Björk Árnadóttir fyrrverandi fegurðardrottning sem á von á jólabarni þann 27. desember. Íris og kærastinn hennar, Kristján Jón Jónatansson, eiga fyrir dótturina Katrínu Emblu sem varð 1 árs 20. október. "Reyndar er ég með miklu minni kúlu núna og meðgangan hefur að öllu leyti gengið betur," segir Íris sem fékk meðgöngueitrun er hún gekk með Katrínu Emblu og varð að liggja fyrir síðustu þrjá mánuðina. "Ég er búin að vera ágæt núna og vona að það haldi þennan síðasta mánuð." Ítarlegt viðtal er við Írisi Björk í Magasíni sem fylgir DV í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.