Innlent

Þórólfur ákveðinn um næstu verk

Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók við lyklunum að borgarstjóraskrifstofunni úr hendi Þórólfs Árnasonar, fráfarandi borgarstjóra, í gær. Þórólfur var spurður við þetta tilefni hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur þegar hann hætti. Hann sagðist ætla byrja á því að leggja sig. "En hvað svo," spurðu blaðamenn. Svarið við því vafðist ekki fyrir fráfarandi borgarstjóra: "Ætli ég vakni ekki."

Fyrsta embættisverk Steinunnar Valdísar, var undirritun samkomulags milli Reykjavíkurborgar, félagsmálaráðherra, menntamálaráðherra, Rauða kross Íslands og Velferðarsjóðs barna, um verkefnið Framtíð í nýju landi. Því er ætla að hjálpa nýjum Íslendingum að aðlagast samfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×