Innlent

Bílvelta í hálku

Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Borgarfjarðarbraut við Grímsá laust fyrir hádegi á sunnudag. Þrennt var í bílnum en að sögn lögreglu voru slys á fólki minniháttar þótt bíllinn sé mikið skemmdur. Fljúgandi hált var í uppsveitum Borgarfjarðar í gær og sagði lögregla ökumenn fólksbíla, jafnt sem jeppa, hafa átt í mestu vandræðum að halda bílum sínum á veginum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×