Innlent

Á batavegi eftir hálkuslys

Ung kona sem datt í hálku við bæ í Hrunamannahreppi í fyrrakvöld, og var flutt meðvitundarlaus með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Fossvogi, er á batavegi. Konan komst til meðvitundar á spítalanum. Hún útskrifaðist af gjörgæslu á almenna deild í gær, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu. Sjúkrabíll flutti konuna nokkurra kílómetra leið í þyrluna, sem varð að lenda á næsta bæ vegna éljagangs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×