Innlent

Tíu þúsund skráðir á Tónlist.is

Nær tíu þúsund manns hafa skráð sig á vefmiðilinn Tónlist.is. Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir þessa miklu þátttaka ekki koma á óvart. "Ég hef haft þessa trú í mörg ár en þetta gerist hraðar en ég þorði að vona. Ég hef alltaf verið þeirra skoðunar að innan þriggja til fjögurra ára fari smásala tónlistar fram í gegnum netið," segir Hjörleifur. Lagið Ást sem Ragnheiður Gröndal flytur er vinsælasta lag síðunnar frá upphafi. Hjörleifur segir um fimm prósent af heildarsölu lagsins vera í gegnum netið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×