Chirac húðskammaði Bush 28. júní 2004 00:01
Frakkar halda fast við að Atlantshafsbandalagið hafi engu formlegu hlutverki að gegna í Írak. Jacques Chirac, forseti Frakklands, húðskammaði auk þess George Bush, forseta Bandaríkjanna, fyrir afskiptasemi af málefnum Evrópu á leiðtogafundi bandalagsins í Tyrklandi. Frakkar féllust á það með semingi á leiðtogafundi NATO í dag að taka þátt í að þjálfa írakska herinn. Það vilja þeir þó alls ekki gera í Írak því þangað ætla þeir ekki að senda einn einasta hermenn. Þeir ljá þó máls á því að þjálfun fari fram í Frakklandi, eða jafnvel einhverju þriðja landi. Þá standa Frakkar á því fastar en fótunum að NATO sem bandalag hafi ekkert að gera í Írak og eigi ekki taka þar að sér nein verkefni. Þótt enginn annar leiðtogi hafi talað jafn skýrt og Chirac er ljóst að hann talar fyrir munn margra annarra. Menn voru brosmildir og kumpánlegir á þessum leiðtogafundi en ljóst er að ekki er gróið um heilt eftir þá sundrung sem varð við innrás Bandaríkjamanna í Írak. Frakkar nota líka hvert tækifæri til þess að senda Bandaríkjamönnum tóninn. Þannig brást Chirac reiður við þegar hann frétti að Bush hefði hvatt Evrópusambandið til þess að ákveða dagsetningu fyrir aðildarviðræður Tyrklands að sambandinu. Chirac sagði að Bush ætti ekki að vera að skipta sér af hlutum sem honum kæmu ekki við. Að hann skyldi segja þetta væri eins og Frakkar færu að segja Bandaríkjamönnum hvernig þeir ættu að haga samskiptum sínum við Mexíkó.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Erlent Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Erlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Innlent Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sjá meira