Erlent

Gæsluvarðhald framlengt

Þrír þeirra sem talið er víst að hafi gert misheppnaðar hryðjuverkaárásir í Lundúnum þann tuttugasta og fyrsta júlí síðastliðinn voru úrskurðaðir í lengra gæsluvarðhald í dag. Lögreglu miðar vel við rannsókn þeirra árása en virðist lítið vita um mannskæðu árásirnar þann sjöunda júlí. Hjá Scotland Yard er talið að hryðjuverkamenn muni breyta aðferðafræði sinni til að snúa á lögreglu á götum úti og er talið líklegt að þeir beiti konum og börnum í sjálfsmorðsárásum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×