Menning

Hyundai styrkir fótbolta

Hyundai Motor Co. hefur gert nýjan samstarfssamning við FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið eins og kemur fram á heimasíðu B&L, bl.is. Samningurinn gildir frá árinu 2007 til ársloka 2014 og verður Hyundai því áfram einn af sex meginstyrktaraðilum sambandsins. Það felur í sér að Hyundai mun áfram sjá mótsstjórnum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu fyrir bílum sem flytja meðal annars keppnisliðin og dómara á milli staða. Hyundai hefur einnig styrkt Evrópukeppnina í knattspyrnu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.