Sport

Eiður Smári á bekknum gegn Benfica

Eiður Smári Guðjohnsen byrjar á varamannabekknum hjá Chelsea í kvöld en liðið spilar þá sinn annan leik á undirbúningstímabilinu gegn portúgalska liðinu Benfica. Chelsea og Benfica spila um Samsung-bikarinn og það verður vítaspyrnukeppni sem ræður úrslitum standi leikar jafnir eftir venjulegan leiktíma. Eiður Smári er á bekknum með ekki minni mönnum en John Terry, Claude Makelele, Hernán Crespo og Damien Duff en á miðjunni að þessu sinni eru þeir Tiago, Jirí Jarošik og Frank Lampard. Eiður Smári fékk mikið hrós fyrir frammistöðu sína á miðjunni í 5-1 sigri á Wycombe í síðustu viku. Byrjunarlið Chelsea: (4-3-3):  Petr Cech - Paulo Ferreira, William Gallas,  Glen Johnson, Asier Del Horno - Tiago, Jirí Jarošik,  Frank Lampard - Joe Cole, Carlton Cole, Arjen Robben. Varamenn: Claude Makelele, Hernán Crespo, Damien Duff, Eiður Smári Gudjohnsen, Carlo Cudicini, John Terry, Steven Watt, Nuno Morais, Anthony Grant.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×