Sport

Grímuball með LeBron James

Gríman, sem LeBron James lék með til að verja áverka sem hann hlaut í leik gegn Houston, kom ekki í veg fyrir góða frammistöðu kappans í leik Cleveland Cavaliers gegn Charlotte Bobcats í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. James var stigahæsti maður vallarins með 26 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Cavaliers vann leikinn 92-83 og er næstefst í Austurdeildinni með 60% vinningshlutfall en Shaquille O´Neal og lið hans, Miami Heat, er sem fyrr á toppnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×