Menning

Hulunni svipt af nýju ljóni

Nýja Peugeot 407 línan verður frumsýnd hjá Bernhard ehf. í Vatnagörðum í dag. Peugeot 407 er glæsilegur útlits og býður upp á ýmsa nýsköpun í tækni og útbúnaði. Hann uppfyllir einnig hæstu öryggiskröfur og er með afar góða aksturseiginleika. Peugeot er boðinn í fjögurra dyra limosine útfærslu og fimmdyra SW útfærslu með glerþaki á 407. Peugeot 407 hefur straumlínulagaðan framenda og uppbyggðan afturenda sem gerir útlitið framúrstefnulegt. Peugeot 407 kemur í alls 22 útfærslum, allt eftir þörfum hvers og eins. Allt frá 1.8 l bensínvél upp í 3.0 i V6 ásamt dísilvélum í ýmsum stærðum. Hið mikla framboð er nýgerðum samningi við Peugeot í Danmörku að þakka en það samstarf eykur þjónustustig Peugeot á Íslandi, styttir afgreiðslutíma og gerir Bernhard ehf. kleift að bjóða viðskiptavinum sínum enn lægra verð. Umboðsaðilar Bernhard Peugeot á Íslandi eru: Bílavík í Reyjanesbæ, Bílver á Akranesi, Höldur á Akureyri og Bragginn í Vestmannaeyjum. Um helgina verður opið hjá öllum þessum aðilum frá 12 til 16 báða dagana. Verðið á Peugeot 407 er frá 2.190.000 krónum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.