Sport

Vilja tvær deildir

Flest félög í DHL-deild karla vilja breyta mótafyrirkomulagi deildarinnar og skipta félögunum niður í tvær deildir. Í dag eru öll liðin í einni deild sem síðan skiptist í tvær deildir eftir áramót. Handknattleikssamband Íslands stóð fyrir könnun meðal forráðamanna og þjálfara félaganna fimmtán í deildinni og þar kom fram eindreginn áhugi á því að breyta til. Sambandið hélt formannafund um helgina og þar var ákveðið að setja á laggirnar þriggja manna nefnd sem á að útfæra hugmyndirnar nánar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×