Innlent

Konu enn haldið sofandi

Konu sem hlaut alvarleg brunasár og varð fyrir reykeitrun í eldsvoða í Stigahlíð í Reykjavík 27 ágúst síðastliðinn er enn haldið sofandi í öndunarvél. Vakthafandi læknir á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi sagði erfitt að segja fyrir um hversu lengi konunni yrði haldið sofandi, en taldi þó fyrirséð að það yrði í einhvern tíma enn. Miklar skemmdir urðu í eldsvoðanum, en aðrir íbúar í húsinu náðu að forða sér úr eldinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×