Innlent

Beit konu í baugfingur

Ákvörðun um refsingu rétt tæplega 26 ára gamallar konu var í gær frestað í Héraðsdómi Vestfjarða, en hún hafði verið kærð fyrir líkamsárás. Haldi konan skilorð í tvö ár fellur refsingin niður. Konan bar við sjálfsvörn þegar hún beit aðra í baugfingur vinstri handar í húsi á Ísafirði aðfaranótt laugardagsins 19. mars síðastliðins. Ákæruvaldið féllst á að árásin hefði átt sér stað í átökum milli kvennanna. Sú sem bitin var á einnig í málarekstri fyrir dómi, en hún sætir ákæru fyrir líkamsárás, sem og bróðir hennar. Hún hlaut bitför og skurð á fingur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×