Innlent

Tvær líkamsárásir á Fáskrúðsfirði

Tennur voru kýldar úr ungum manni sem stóð fyrir utan unglingadansleik á Fáskrúðsfirði aðfaranótt sunnudags. Lögreglan varð vitni að árásinni sem virtist tilhæfulaus. Dálítið var um slagsmál á dansleiknum sem þrjú hundruð ungmenni sóttu. Tveir voru slegnir illa. Í hinni árásinni blæddi inn á auga. Báðir voru fluttir á slysadeild. Lögreglan telur fórnarlömbin ætla að leggja fram kæru. Í hvorugri árásinni þekktust menn en í annarri höfðu þeir þráttað á öðru balli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×