Misskilningur hjá sagnfræðingum 4. október 2005 00:01
Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, segir að misskilnings gæti í ályktun Sagnfræðingafélags Íslands sem gagnrýndi harðlega að Þorsteini Pálssyni, sendiherra og fyrrverandi forsætisráðherra, hafi verið falið að skrifa bók um hundrað ára afmæli þingræðis á Íslandi. Sagnfræðingum finnst fram hjá sér gengið í vali á höfundi bókarinnar, sem þeir telja að ætti að vera hlutverk sagnfræðinga. Sólveig segir ráðningu Þorsteins hafa verið staðfesta af fráfarandi forsætisnefnd án þess að athugasemdir hafi verið gerðar við ráðningu hans. Hún segir misskilning sagnfærðinganna ekki síst felast í því að halda því fram að bók um 100 ára þingræði Íslendinga sé einungis á verksviði einnar fræðigreinar eins og sagnfærði. Hið rétta sé að sögn Sólveigar að rannsóknarvinna fyrir bókina krefjist ekki síður þekkingar í lögfræði og stjórnmálafræði en sagnfræði. Því hafi Þorsteinn, sem sé menntaður lögfræðingur og með sérkunnáttu í stjórnskipunarrétti orðið fyrir valinu. Hann verði þó ekki einn um að skrifa bókina því auk hans hafi verið skipuð ritnefnd sem í sitja Helgi Skúli Kjartansson, prófessor í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands, og dr. Ragnhildur Helgadóttir, lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík. Aðspurð sagði Sólveig að vinna við bókina ætti ekki að trufla störf Þorsteins í utanríkisþjónustunni enda byrji bókarskrifin fyrir Alþingi ekki fyrr en eftir áramót, Þorsteinn muni láta af störfum sem sendiherra 1. nóvember. Sólveig segir ekki ljóst hvað Þorsteinn muni fá í sinn hlut fyrir ritstörfin.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Fleiri fréttir Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Sjá meira