Vill álit á vistaskiptum þingmanns 4. október 2005 00:01
Framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins hefur óskað eftir rökstuddu áliti umboðsmanns Alþingis á því hvort Gunnar Örn Örlygsson geti tekið þingsæti Frjálslynda flokksins og farið með það í Sjálfstæðisflokkinn. Á þingfundi á síðasta starfsdegi Alþingis síðastliðið vor tilkynnti Gunnar Örn Örlygsson alþingismaður að hann hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokk en með vistaskiptum þingmannsins jókst meirihluti ríkisstjórnarflokkanna. Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslyndra, hefur óskað eftir rökstuddu áliti umboðsmanns Alþingis á því hvort Gunnari Örlygssyni hafi verið heimilt að fara eins og hann gerði, með það umboð sem kjósendur Frjálslynda flokksins veittu honum í síðustu alþingiskosningum. Gæti kjörinn þingmaður til dæmis skipt um flokk um leið og hann hefur móttekið kjörbréf sitt, spyr hún og bætir við: Sé það heimilt, er þá opin leið fyrir tækifærissinna að fara í framboð fyrir einn flokk en ákveðið síðan að skipta um flokk strax að loknum kosningum. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar segir Margrét að vissulega sé brýnt að fá svar frá umboðsmanni en mikilvægast sé þó að fá umræðu um málið og að samstaða náist um að svona gerist ekki aftur, framkoma þessi sé óheiðarleg og vanvirðing við kjósendur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Fleiri fréttir Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Sjá meira