Sport

Manchester United sigraði Chelsea

Darren Fletcher fagnar hér sigurmarki sínu ásamt Ruud van Nistelrooy
Darren Fletcher fagnar hér sigurmarki sínu ásamt Ruud van Nistelrooy NordicPhotos/GettyImages

Chelsea tapaði í fyrsta sinn í fjörutíu leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið sótti Manchester United heim á Old Trafford. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark United með laglegum skalla í fyrri hálfleik.

Bæði lið fengu færi á að skora fleiri mörk, en niðurstaðan var sigur United eftir æsilegar lokamínútur. Sigurinn skaut Manchester United í þriðja sæti deildarinnar, tíu stigum á eftir Chelsea, en United á leik til góða á meistarana. Það var vel við hæfi að sigur United kæmi á deginum sem markaði nítján ára setu Alex Ferguson í starfi knattspyrnustjóra liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×