Körfubolti

Ýmis­legt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“

Aron Guðmundsson skrifar
Grindvíkingar tóku ákvörðun um að rifta samningi sínum við Bandaríkjamanninn Devon Thomas.
Grindvíkingar tóku ákvörðun um að rifta samningi sínum við Bandaríkjamanninn Devon Thomas. Vísir/Samsett mynd

Grind­víkingar hafa blásið í her­lúðra í Bónus deildinni í körfu­bolta og nýverið kynnt komu þriggja nýrra leik­manna. Einn þeirra er fyrr­verandi NBA leik­maður. Þjálfari liðsins, Jóhann Þór Ólafs­son, segir pirring hafa gert vart um sig í leik­manna­hópnum varðandi ákveðna hluti. Hann bindur vonir við að þessar breytingar lagi það. Að menn fari að sjá ljósið og brosa aftur.

Leikmennirnir þrír sem um ræðir eru þeir Arnór Tristan Helgason, Bragi Guðmundsson og Bandaríkjamaðurinn Jeremy Pargo. Grind­víkingar þekkja þá Arnór og Braga frá fyrri tíð er þeir léku með liðinu áður en að leið þeirra lá er­lendis. Jóhann býst við full­mótaðri leik­mönnum í þeim í þetta skiptið.

„Þeir eru báðir miklir íþrótta­menn með mikla orku, há­vaxnir bak­verðir. Þetta gefur okkur náttúru­lega nú­mer eitt, tvö og þrjú stærri og breiðari hóp. Með því verður meiri sam­keppni inn á æfingum og svo á eftir að koma í ljós hvernig þeim tekst til, hvernig þeir dafna í okkar hóp. Við hlökkum mikið til að sjá hvað kemur út úr þessu og erum nokkuð brattir með þetta.“

Arnór Tristan Helgason er mættur aftur í lið Grindavíkur, stuðningsmenn liðsins bíða í ofvæni eftir troðslum frá honumVísir/Hulda Margrét

„Bragi hefur aðeins æft með okkur núna, hann kom fyrir helgi, og við sjáum alveg og bindum vonir við að hann hafi bætt sig tals­vert á báðum endum vallarins. Arnór lenti bara í gærkvöldi og við höfum ekki tekið púlsinn á honum en klár­lega mæta þeir stærri hingað. Hafa verið í góðum verk­efnum úti og hafa vonandi nýtt tímann vel, lært, vaxið og dafnað.“

Þá er koma Jeremy Pargo afar spennandi. Þar er um að ræða leik­mann sem er að vísu kominn af sínu besta skeiði, en það skeið var ansi gott. Pargo er að verða 39 ára gamall í mars næst­komandi og á sinni feril­skrá er hann með 86 leiki í NBA deildinni. Þá skapaði hann sér nafn í Euro­Leagu­e, sterkustu deild Evrópu og hefur um leið unnið sex lands­titla.

„Vorum ekkert alltof sáttir með það sem við vorum að fá“

Fyrir komu Pargo höfðu forráða­menn Grinda­víkur verið að íhuga að taka inn nýjan Bandaríkja­mann í sitt lið í stað De­von Thomas sem byrjaði vel í gulu treyjunni en svo tók að halla all­veru­lega undan fæti.

„Við höfðum velt fyrir okkur ýmsum nöfnum og ýmis­legt sem kom upp. Vorum ekkert allt­ sáttir með það sem að við vorum að fá og vorum í rauninni komnir inn á að láta reyna á að láta þetta ganga upp. Svo er ýmis­legt sem kemur upp á. Ýmis at­vik og annað sem, án þess að fara eitt­hvað djúpt ofan í það, reynist kornið sem fyllir mælinn. Við tökum ákvörðun um að skipta um Bandaríkja­menn og samdægurs, á föstu­degi, fáum við póst frá um­boðs­manni Pargo og könnum það mál betur. Svo leiðir eitt af öðru og við gerðum vel í að landa þessu á stuttum tíma.“

Erfitt sé að skýra út af hverju hlutirnir hafi ekki gengið upp með De­von Thomas.

Devon Thomas er ekki lengur leikmaður Grindavíkurvísir / anton brink

„Við vorum mikið að velta þessu fyrir okkur á nýju ári. Í raun strax eftir leikinn gegn KR sem var síðasti leikur fyrir jól. Hann byrjaði mjög vel hjá okkur. Fyrstu sex til sjö leikirnir voru mjög lofandi en svo er eitt­hvað sem gerist. Ég veit ekki hvað það er. Það var ein­hver sem sagði að hann hefði lent í svona Space Jam at­riði, að ein­hver geim­vera hafi bara komið og étið hann. Maður veit aldrei með þessa stráka. Það getur alls konar komið upp á en þetta var niður­staðan. Vonandi á þetta eftir að ganga upp.“

Hvernig tók hann þessu?

„Bara mjög fag­mann­lega. Í þau skipti sem ég hef þurft að eiga við eitt­hvað svona þá eru þeir allir mjög auðmjúkir og þakka fyrir tækifærið. Það sama var uppi á teningnum hjá De­von Thomas.“

Fékk mjög góð meðmæli frá Kane: „Myndi segja að það væri nokkuð gott“

Mikla vonir eru bundnar við komu reynslu­boltans Pargo. Það fer af honum gott orð.

Hér verst Jeremy Pargo, þá leikmaður Maccabi Tel Aviv, Lebron James, einum besta körfuboltamanni allra tímaVísir/Getty

„Hann er náttúru­lega orðinn 38 ára gamall, það er því ákveðinn séns í þessu, en miðað við þá sem að maður hefur rætt við um hann sem og hann sjálfan þarf ég að hafa litlar áhyggjur. Svo á það bara eftir að koma í ljós. Við höfum náttúru­lega átt erfitt upp­dráttar á hálfum velli, sóknar­lega. Miðað við það sem að maður hefur séð og heyrt, þá er þetta leið­togi inn á vellinum og við bindum miklar vonir við að hann geti gert betur í því að stýra okkar sóknar­leik. Að hann geti fundið okkar helstu hesta í góðum stöðum. Svo á hann að geta gert helling sjálfur, búið til góðar stöður fyrir sig og aðra.“

Pargo spilaði með DeAndre Kane, leik­manni Grinda­víkur og einni helstu stjörnu Bónus deildarinnar, hjá Mac­cabi Tel Aviv í Ís­rael árin 2018-2019

„Ég fékk mjög góð meðmæli frá DeAndre Kane varðandi Pargo. Hann hefur ekki mikið álit á öðrum leik­mönnum heldur en sjálfum sér þannig að ég myndi segja að það væri nokkuð gott. Þeir þekkjast, eru í reglu­legu sam­bandi og jú það spilaði inn í ákvörðunina.“

Kemur það þér á óvart að leik­maður með þessa reynslu sé að dúkka upp hér á landi?

„Já ég verð að viður­kenna það. En að vísu verður hann 39 ára í mars næst­komandi. Ég hugsa að þessi stóru og flottu lið í Evrópu séu að líta í aldurinn og þar af leiðandi ýta þessu frá sér en eftir að hafa talað við hann er ljóst að hann vill komast í skipu­lagðan körfu­bolta aftur. Hann hefur gert þetta síðastliðin tvö til þrjú ár, að vísu í aðeins stærri deild en þessa. En hann var klár og hvers vegna þá ekki?“

En munu nýju leik­mennirnir, Arnór, Bragi og Jeremy Pargo geta spilað á móti Stjörnunni í kvöld?

„Bragi kom fyrir helgi og er klár. Ég reikna með að hafa Arnór í hóp á morgun. Svo bindum við vonir við að Jeremy verði mættur og að allt verði klappað og klárt. Við verðum bara að bíða og sjá hvort það náist.“

Hann gæti því mögu­lega spilað á móti Stjörnunni?

„Við bindum vonir við það. En það á eftir að koma í ljós hvað verður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×