Sport

Keane og Wenger til Real?

Nú virðist fara að draga til tíðinda hjá Real Madrid sem er í þjálfaraleit eftir að brasilíski knattspyrnustjórinn Wanderley Luxemburgo var rekinn um síðustu helgi. Fréttir frá Spáni herma nú að Madridarfélagið ætli að bjóða Arsene Wenger, stjóra Arsenal, 15 milljónir punda fyrir að taka við liðinu með 3 ára samningi.

Þá herma fregnir einnig að Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Man Utd hafi gengist undir læknisskoðum hjá Real Madrid í gær og gengið verði frá samningi við hann eftir helgina.

Varaforseti Real Madrid, Emilio Butragueno mun ætla að hitta David Dean stjórnarformann Arsenal í Sviss næsta föstudag þegar dregið verður í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar og ræða mál Wenger. Sumir fjölmiðlar segja að Madridar-risinn muni ganga frá ráðningu á Wenger nú strax í desember á meðan aðrir segja að það gerist ekki fyrr en í sumar. Almennt er þó talið að Real Madrid hafi einfaldlega ekki efni á því að bíða svo lengi og muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að landa franska knattspyrnustjóranum sem fyrst en Florentino Perez, eigandi Real hefur aldrei farið leynt með aðdáun sína á Wenger.

Hvað Roy Keane varðar þá hafa Celtic, Everton, Bolton, Middlesbrough og Juventus verið orðuð við miðjumanninn öfluga síðan samningi hans hjá Man Utd var rift í lok nóvember en flest bendir nú til þess að hann muni fara til Spánar ef marka má fréttir helgarinnar úr erlendum fréttamiðlum.

Keane er í spænskum fjölmiðlum í dag sagður hafa gengist undir læknisskoðum hjá Real Madrid í gær og mun félagið ganga frá samningi við hann eftir helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×